Smári Valtýr Sæbjörnsson
Magnús matreiðslumeistari og framkvæmdastjóri Air Chefs Catering: „..spennandi verkefni að opna flugeldhús á flugvallarsvæðinu.“

Hjá Air Chefs Catering verða framleiddar máltíðir fyrir bæði farþega og flugáhafnir WOW air og annarra flugfélaga sem fljúga til Íslands
Fyrirtækið Air Chefs Catering verður opnað í haust, gangi áætlanir eigenda eftir. Framkvæmdastjóri félagsins er Magnús Ólafsson. Hjá Air Chefs Catering verða framleiddar máltíðir fyrir bæði farþega og flugáhafnir WOW air og annarra flugfélaga sem fljúga til Íslands að því er fram kemur á heimasíðu Víkurfrétta. Einnig mun þar verða framleiddur matur fyrir mötuneyti Airport Associates og önnur fyrirtæki sem til félagsins leita.
Á heimasíðu vf.is kemur fram að eldhúsið verður staðsett í nýbyggingu Airport Associates sem nú er verið að reisa á flugvallarsvæðinu. Að Air Chefs Catering standa Airport Associates, Fjárfestingarfélagið Títan ehf. í eigu Skúla Mogensen, aðaleiganda WOW air, og Fjárfestingarfélagið MK í eigu Magnúsar og viðskiptafélaga hans.
Magnús er matreiðslumaður og viðskiptafræðingur að mennt og var áður framleiðslustjóri hjá IGS svo hann er vel kunnugur starfsemi sem þessari. Að sögn hans verða starfsmenn tíu til fimmtán til að byrja með og verður unnið samkvæmt vaktafyrirkomulagi.
„Þetta er mjög spennandi verkefni að opna eldhús á flugvallarsvæðinu. Nú er verið að vinna að hönnun eldhússins í samstarfi við mjög færa aðila. Það eru margvíslegar kröfur sem þarf að uppfylla í tengslum við framleiðsluna.“
sagði Magnús í samtali við Víkurfréttir.
Mynd: wowair.is
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði




