Frétt
Magnús kokkur á Tjöruhúsinu dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar

Kokkurinn á Tjöruhúsinu: Greiðir 36 milljón króna sekt vegna skattsvika
Magnús hefur tvisvar áður verið sakfelldur og dæmdur til refsingar vegna brota gegn skattalögum. Annars vegar árið 1998 og hins vegar 2005.
Magnús Hauksson, kokkur á Tjöruhúsinu, var dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og til greiðslu 39 milljóna sektar sem renna skal í ríkissjóðs vegna brota sinna gegn skatta- og bókhaldsreglum. Magnús játaði að fullu. Dómurinn var kveðinn upp af Héraðsdómi Vesturlands.
Magnús var ákærður seint á síðasta ári og honum gefið að sök að hafa hvorki staðið skil á virðisaukaskatti né virðisaukaskattsskýrslum á árunum 2006 til 2011. Var talið að með því hafi hann skotið rúmlega 19,5 milljónum króna undan skatti. Þá var Magnúsi einnig gefið að sök að hafa ekki haldið lögboðað bókhald og varðveitt fylgiskjöl og önnur bókhaldsgögn vegna atvinnustarfsemi sinnar, af því fram kemur á visir.is.
Hann var sakfelldur í öllum ákæruliðum og brot hans voru talin meiriháttar í skilningi almennra hegningarlaga.
Magnús taldi að við ákvörðun refsingar ætti að líta til þess „að þrátt fyrir að hann hafi ekki haldið bókhald og því liggi ekki fyrir gögn um að hann hafi greitt virðisaukaskatt til frádráttar álögðum skatti sé ljóst að um slíka reikninga var að ræða. Því sé tjón ríkissjóðs vegna brota hans ekki í samræmi við þær tölur sem fram koma í ákæru. Þá kveðst ákærði nú hafa komið skattamálum sínum í rétt horf og sé launamaður,“ að því er segir í dóminum. Því var hafnað alfarið að hægt væri að líta til gagna sem ekki hafa verið lögð fram.
Magnús hefur tvisvar áður verið sakfelldur og dæmdur til refsingar vegna brota gegn skattalögum. Annars vegar árið 1998 og hins vegar 2005. Greint frá á visir.is.
Dóminn má sjá í heild sinni hér.
Mynd: Sverrir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn4 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Frétt7 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Keppni3 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Markaðurinn2 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð




