Markaðurinn
LUX veitingar sendiherrar fyrir Henkelman vakúmpökkunarvélar
LUX veitingar og Umbúðir & Ráðgjöf hafa gert með sér samkomulag þar sem LUX veitingar taka að sér að vera sendiherrar fyrir Henkelman vakúmpökkunarvélar hér á landi. Fyrstu vélarnar þegar verið settar upp hjá LUX veitingum, en veitingamönnum mun gefast kostur á að skoða vélarnar hjá Hinrik og Viktori og fá hjá þeim ráðgjöf varðandi Henkelman vakúmpökkunarvélar og notkun þeirra, auk þess sem vélar til einkanota verða til sölu hjá þeim félögum.
LUX veitingar tóku í notkun Boxer 52 vél frá Henkelman í byrjun október. Að sögn Hinriks hefur vélin gjörbreytt pökkunarferlinu, afköstin hafa margfaldast og þar af leiðandi sparast mikill tími sem nýtist til annarra verka.
Samúel framkvæmdastjóri hjá Umbúðum & Ráðgjöf segir að það sé mikið happ að fá eins hæfileikaríka og virta veitingamenn eins og þá Hinrik og Viktor til að koma að kynningarstarfi á Henkelman vakúmpökkunarvélum, en forsenda þess samstarfs séu þau gæði og vöruþróun sem Henkelman stendur fyrir.
Umbúðir & Ráðgjöf er í Gylfaflöt 4.
Sími 423 7900 – [email protected]
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember




