Vín, drykkir og keppni
Leó á Vegamótum vann Inspired by Björk & Birkir Kokkteilkeppnina

Sigurvegarar:
F.v. Bruno Falkao 3. sæti, (það var Aðalsteinn sem tók á móti verðlaunum fyrir hönd Víkings) Víkingur Kristjánsson 2. sæti og Leó Ólafsson 1. sæti
Fimmtudagskvöldið sl. var haldin á Slippbarnum kokkteilkeppnin Inspired by Björk & Birkir á vegum Foss distillery, Barþjónaklúbbs Íslands og Globus hf. Þar var margt um manninn og gríðarlega góð þátttaka í keppninni.
Keppendur þurftu að búa til fimm drykki með frjálsri aðferð sem innihéldu a.m.k. 3cl af annað hvort Björk eða Birki.
- Stemmari
- Partur af keppendum
- Óskar Tapashúsið
- Ólöf með nokkra keppnis
Það var ótrúlega fjölbreytt flóra drykkja sem leit dagsins ljós og greinilegt að mikil vakning og gróska er í gerð kokktela hér á landi um þessar mundir. Keppnin var óformleg og var eingöngu dæmt fyrir drykkina, ekki vinnubrögð og dæmdi dómnefnd fyrir útlit og bragð.
Dómnefndin var skipuð fagfólki úr veitingabransanum, bæði barþjónum og kokkum en í henni voru: Ásgeir Már Björnsson Kokteilbarþjónn, Sigurrós Pálsdóttir Matreiðslumaður, Bjarni Siguróli Jakobsson Matreiðslumaður ársins 2012 og Margrét Gunnarsdóttir barþjónn. Þau höfðu það erfiða verkefni að smakka 27 mismunandi drykki. Keppni var nokkuð jöfn, t.d. munaði bara einu stigi á 3. og 4. Sæti.
- Óli kokteilpinni,,, nei kynnir
- Natascha frá Kopar
- Kristján Nói frá Lava
- Jakob Bjarnason í Björk & Birkir
- Ja hérna, Óli og Natascha
- Högni í Hjaltalín og Charlotta frá Snaps
- Dómarar að störfum
- Börkur, Sebastian og Kári
Það var Leó Ólafsson Barþjónn á Vegamótum sem bar sigur úr bítum með drykknum sínum sem heitir Birki dropi. Í öðru sæti varð Víkingur Kristjánsson barþjónn á KOL með drykk sem hann kallar 1793 og í þriðja sæti lenti Bruno Falkao barþjónn á Kolabrautinni en hans drykkur heitir Birkir.
- B&B
- Ásta á Kopar og Kristín Dögg
- Alexandre frá Loftið
- Aðalsteinn frá Kol
- Aðalsteinn Bjarni frá Kol
Það var mál manna sem viðstaddir voru að gríðarlega vel hafi til tekist með keppnina og að stemningin á staðnum hafi verið góð. Það vara bryddað upp á þeirri nýung að gefa áhorfendum að smakka drykkina jafnóðum sem mæltist vel fyrir og gerði keppnina meira spennandi fyrir áhorfendur.
1. sæti – Leó Ólafsson – Vegamót
Heiti: Birki dropi
3cl Birki
3cl Cointreau
3cl Sítrónu safi
3cl Birki sýrop
eggahvíta
Skreyting; Birkigreinar og sítrónusneið
2. sæti – Víkingur Kristjánsson – Kol
Heiti: 1793
3c Birkir
1,5cl Dry Curaçao
3cl Lemon
2,25cl Hunang
Mynta
3. sæti – Bruno Falcao – Kolabrautin
Heiti: Birkir
1 oz Björk
1 oz Engifer sýrop
1 oz Limesafi ferskur
1 oz Sour Apple De Kuyper
Skreyting; Birki lauf og eplasneið
Shake all ingredients , serve into a oldfashion glass on the rocks.
Myndir: Björn Blöndal
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt4 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt6 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHandverksbjór og matarveisla á Hólum




























