Markaðurinn
Leiðtogi Matvæla- og veitingagreina
Við leitum að framsæknum leiðtoga til að leiða fræðslu og þjónustu IÐUNNAR gagnvart matvæla- og veitingagreinum. Í þeim tilgangi þróar leiðtoginn faglega sérhæfingu IÐUNNAR í viðkomandi greinum og skapar sterk tengsl við fagmenn/faggreinarnar.
Leiðtogi matvæla- og veitingagreina er nýtt starf innan IÐUNNAR sem kallar á framsýni og frumkvæði gagnvart greinunum. Skilvirkt samstarf þarf við deildir IÐUNNAR um framkvæmd mála og við fagráð greinanna þar sem fræðslu- og þjónustuþarfir mótast.
Um þig:
- Þú hefur brennandi áhuga á fræðslu matvæla- og veitingagreina.
- Tekur auðveldlega frumkvæði og átt gott með að leiða samstarf á farsælan hátt.
- Hefur reynslu af samstarfi í atvinnulífinu.
- Ert árangursdrifinn einstaklingur og með framúrskarandi samskiptafærni.
- Þú hefur menntun sem nýtist í starfi, á sviði matvæla- og veitingagreina.
- Býrð yfir þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.
- Hefur stafræna styrkleika.
- Ert framsækinn, skapandi og metnaðarfullur einstaklingur.
Ábyrgðarsvið:
- Skipulagning á fræðslustarfi fyrir matvæla- og veitingagreina.
- Þróa leiðir til fyrirtækjafræðslu fyrir matvæla- og veitingagreinar.
- Samstarf við lykilfólk í greinunum og uppbygging tengslanets.
- Fyrirtækjaheimsóknir og eftirfylgni verkefna.
- Þátttaka í umsögnum um fagtengd mál.
- Undirbúningur og eftirfylgni Fagráðsfunda.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, æskilegt að viðkomandi hafi menntun í matvæla- og veitingagreinum auk framhaldsmenntunar.
- Einstaklingur með þekkingu og reynslu af samstarfi í í atvinnulífinu. Innsýn og reynsla af fræðslustarfi er kostur.
- Umtalsverð þekking og áhugi á iðnaðinum, mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti, skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð, framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og árangursdrifni.
- Menntun í kennslufræði og/eða reynsla af kennslu er kostur.
- Félagslega sinnaður einstaklingur sem á auðvelt með að takast á við fjölbreytileg verkefni, vinna í hópi, túlka sameiginlegan ávinning ólíkra aðila og leiða samstarf á farsælan hátt.
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Frétt6 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn2 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila






