Vertu memm

Markaðurinn

Lærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum

Birting:

þann

Lærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum

Þetta námskeið er ætlað fagfólki í matvæla- og veitingageiranum sem vill efla hæfni sína í myndagerð fyrir samfélagsmiðla og eigin nota. Unnið er með hagnýta nálgun þar sem þátttakendur læra að nýta aðstæður, ljós og umhverfi til að fanga augnablik og stemningu í starfi sínu með iPhone snjallsíma eða einfaldri myndavél.

Námskeiðið felur í sér að læra að búa til einfalt en vandað myndefni, og miðla því á réttan hátt í leik og starfi. Námskeiðið er kennt einu sinni í viku í 3 vikur, 4 klst. í senn. ATH – Námskeið þetta er ætlað þeim sem eiga Iphone síma og einfaldar myndavélar.

Fyrir hverja:

  • Fagfólk í matvæla- og veitingagreinum sem vilja bæta myndatökufærni sína og fanga augnablikið þegar það gefst.

Markmið:

  • Að þátttakendur öðlist traustan grunn og hagnýt verkfæri til að búa til betra myndefni, nýta ljós og umgjörð rétt, og vinna myndir á einfaldan hátt.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Myndefni og árangursríka notkun þess fyrir samfélagsmiðla
  • Möguleika og takmarkanir iPhone snjallsíma og einfaldari myndavéla
  • Gervilýsing innandyra og í lítilli birtu
  • Leikmuni, bakgrunn og uppsetningu (styling)
  • Kynningu á myndvinnsluforritum
  • Verklegar æfingar, einstaklings- og hópaverkefni og heimaverkefni

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta tekið flottar myndir með iPhone snjallsíma eða einfaldri myndavél
  • Búið til aðlaðandi myndefni fyrir samfélagsmiðla
  • Geta nýtt lýsingu og umhverfið til að fanga stemninguna
  • Unnið myndefni í iPhone snjallsíma

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningu má finna hér.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið