Keppni
Kokkalandsliðið sýnir keppnisréttina
Á morgun fimmtudaginn 6. nóvember kl. 11-18 ætlar Kokkalandsliðið að vera í Smáralindinni og sýna yfir 30 rétti sem eldaðir verða í Heimsmeistarakeppninni í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg 22.-27. nóvember. Kokkalandsliðið hefur æft fyrir keppnina síðustu 18 mánuði en keppnisgreinarnar eru tvær, annars vegar er keppt í köldu borði eða Culinary Art Table sem sýnt verður í Smáralindinni og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen.
Það tekur rúma tvo sólarhringa að útbúa alla réttina á kalda borðið sem sýnt verður í Smáralindinni en liður í æfingarferlinu er að flytja réttina á milli staða þannig að þeir haldi fullkomnu útliti sínu. Í keppninni eru gerðar miklar kröfur um útlit og hráefnisnotkun. Kokkalandsliðið leggur áherslu á að nota íslenskt hráefni í réttina sína og borðbúnaðurinn er meðal annars unnin úr rekaviði af Ströndum, keramiki, postulíni, silfri og gulli.
Heimsmeistarakeppnin, Culinary World Cup, er haldin á fjögurra ára fresti. Þar mætast færustu kokkar heimsins alls staðar að úr heiminum og keppa sín á milli um gull, silfur og brons verðlaun. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti.
Meðlimir Kokkalandsliðsins eru:
- Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins
- Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði Lava Bláa lónið
- Viktor Örn Andrésson liðsstjóri Lava Bláa lónið
- Fannar Vernharðsson Vox
- Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarinn
- Ylfa Helgadóttir Kopar
- Hafsteinn Ólafsson Apótekið
- Axel Clausen Fiskmarkaðurinn
- Garðar Kári Garðarsson Strikið
- Daníel Cochran Kolabrautin
- Ari Þór Gunnarsson Fiskfélagið
- Hrafnkell Sigríðarson Bunk Bar
- María Shramko sykurskreytingarmeistari
Mynd: af facebook síðu Kokkalandsliðsins
-
Markaðurinn4 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni4 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta7 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn4 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt6 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt2 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað



