Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Ketilkaffi opnar í Listasafninu á Akureyri
Á dögunum var skrifað undir samning milli Listasafnsins á Akureyri og Þórunnar Eddu Magnúsdóttur og Eyþórs Gylfasonar um rekstur kaffihúss í Listasafninu. Stefnt er á opnun um miðjan júní og mun kaffihúsið bera heitið Ketilkaffi.
„Við erum mjög spennt fyrir að flytja aftur heim til Akureyrar og opna Ketilkaffi í Listasafninu, en okkur hefur lengi dreymt um að opna lítið kaffihús. Við Eyþór höfum góðan grunn úr kaffi- og veitingageiranum, bæði á Íslandi og erlendis, og viljum bjóða Akureyringum og öðrum gestum bæjarins upp á hágæða veitingar.“
segir Þórunn Edda Magnúsdóttir í tilkynningu frá Listasafninu á Akureyri.
Sérvalið kaffi frá Kaffibrugghúsinu og náttúruvín frá Mikka ref
„Á boðsstólnum verður m.a. sérvalið kaffi frá Kaffibrugghúsinu, frábær náttúruvín frá Mikka ref, límonaði sem blandað er á staðnum og spennandi kokteilar, svo eitthvað sé nefnt. Áhersla verður á góðan mat úr gæðahráefnum og má þar nefna súrdeigsbrauðið okkar og salöt með sérvöldum ostum og kjötmeti, fjölbreyttan tapasseðil og ferskar acai- og drekaávaxtaskálar.
Að sjálfsögðu verður svo hægt að fá eitthvað sætt með kaffinu og erum við sérstaklega spennt fyrir að bjóða upp á súrdeigskleinuhringina okkar, sem gerðir eru ferskir frá grunni á hverjum morgni.“
„Alltaf gott veður á Akureyri“
„Eins og allir vita er alltaf gott veður á Akureyri og sólríka stéttin fyrir framan safnið og svalirnar á fjórðu hæðinni eru tilvalin svæði til að tylla sér með svalandi drykk og góðan mat og fylgjast með mannlífinu. Við hvetjum áhugasama til að fylgja okkur á samfélagsmiðlum, en þar erum við þessa dagana að sýna frá tilraunaeldhúsinu okkar og öðrum undirbúningi.
Þegar nær dregur opnun í júní munum við svo kynna opnunartilboð sem gilda fyrir okkar fylgjendur og því er um að gera að fylgjast með,“
segir Þórunn Edda Magnúsdóttir annar eigenda Ketilkaffis.
Hægt er að fylgjast með Ketilkaffi á samfélagsmiðlum og á heimasíðu:
www.ketilkaffi.is
www.facebook.com/ketilkaffi
www.instagram.com/ketilkaffi
Mynd: facebook / Listasafnið á Akureyri
-
Markaðurinn7 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Frétt5 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn3 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn7 dagar síðanMS kynnir tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu í byrjun mars
-
Markaðurinn6 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTímamót hjá Mat og drykk eftir áratug á Grandagarði





