Keppni
Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema – Umsóknareyðublað hér
Forkeppni í Íslandsmóti matreiðslu- og framreiðslunema verður haldin miðvikudaginn 9. janúar 2019.
Keppnin í matreiðslu skiptist í tvo hluta, skriflegt próf og verklegan hluta þar sem verkefnið er að matreiða klassískan forrétt og eftirrétt.
Keppnin í framreiðslu skiptist í eftirfarandi; skriflegt próf, blöndun drykkja – tveir drykkir, kvöldverðaruppdekkning ásamt blómum, fjórir réttir fyrir tvo gesti, umhelling og fjögur sérvettubrot.
Ekki er ætlast til að að keppendur hafi aðgang að hjálpargögnum við úrlausn verkefnisins.
Tveir stigahæstu einstaklingarnir í matreiðslu og framreiðslu munu taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem verður haldin í Stokkhólmi dagana 26 – 27. apríl 2019.
Keppnisréttur er bundinn við aldur. Keppendur mega ekki vera eldri en 23 ára þann 1. maí 2019 og skilyrt er að nemar séu á námssamningi í maí 2019.
Nánari upplýsingar verða sendar út á keppendur í byrjun desember.
Skila þarf umsókn til Matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR Vatnagörðum 20. Netfang: [email protected]. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2018. Forkeppni í matreiðslu og framreiðslu verður haldin 9. janúar kl. 16.00.
Umsóknareyðublað hér. (Word kjal)
Umsóknareyðublað hér. (Pdf skjal)
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn2 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?




