Freisting
Ísland í forsvari fyrir um 8 milljónir matreiðslumanna

Helgi Einarsson, Gissur Guðmundsson og Hilmar B. Jónsson
Í maí 2008 verða stjórnarskipti hjá alheimssamtökum matreiðslumanna (WACS) og hefur Klúbbur Matreiðslumeistara (KM) ákveðið að bjóða fram til stjórnarsetu eftirtalda menn.
-
Gissur Guðmundsson eiganda veitingahússins Tveir Fiskar sem forseta samtakanna
-
Hilmar B. Jónsson hjá Icelandic sem varaforseta
-
Helga Einarsson hjá Dreifingu sem ritara.
Gissur hefur verið forseti Klúbbs Matreiðslumeistara í 6 ár, hefur setið sem forseti NKF (samtök norrænna matreiðslumanna) í 4 ár og í stjórn WACS í 3 ár og er hann því allvel kunnugur málum samtakanna. Norðurlandasamtökin og fjöldi annarra landa sérstaklega í austur- og vestur Evrópu hafa lýst yfir stuðningi við framboð Íslands.
Í fréttatilkynningu segir að ef af verður mun Ísland verða í forsvari fyrir um 8 milljónir matreiðslumanna í 74 þjóðlöndum. Geysilega mikið starf er framundan hjá WACS, sérstaklega þar sem mörg lönd í samtökunum eru skammt á veg komin í skipulagningu náms og félagsmála. Eins og allir vita sem fylgst hafa með Klúbbi Matreiðslumeistara undanfarin ár, er að íslenskir matreiðslumenn eru mjög framarlega í sínu fagi á alþjóðavísu og eru t.d. í 9. – 10. sæti á styrkleika alþjóðasamtakanna.
Íslendingar geta því verið mikil hjálp bæði stórum og smáum þjóðum í fræðslu og félagsmálum.
Klúbbur Matreiðslumeistara
Ingvar Sigurðsson, forseti
Mynd: MOTIV-MYND Jón Svavarsson | [email protected]
-
Frétt7 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni6 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar3 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt2 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku



