Viðtöl, örfréttir & frumraun
Ísak Aron kynnir íslenskan mat á þriggja daga menningarhátíð í Seattle
Taste of Iceland hátíðin snýr aftur til Seattle í dag, 19. mars, og stendur yfir næstu þrjá daga, þar sem íslensk menning, matargerð og listir fá að njóta sín í þremur viðburðaríkum dögum víðs vegar um borgina. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá, allt frá tónlist og listviðburðum til matargerðar sem dregur fram sérstöðu íslensks hráefnis og hugmyndaauðgi.
Einn af hápunktum hátíðarinnar er sérstakur pop-up kvöldverður þar sem matreiðslumaðurinn Ísak Aron Jóhannsson sameinar krafta sína með bandaríska kokkinum Ron Anderson.
Með Ísaki til halds og trausts er matreiðslumeistarinn Andreas Jacobsen.
Kvöldverðurinn fer fram á Palace Kitchen og verður í boði öll kvöld frá klukkan 17 til miðnættis.
Matseðillinn er þriggja rétta og byggir á íslenskum hráefnum og innblæstri úr náttúru landsins. Meðal annars verður boðið upp á þorsk frá Íslandi og lambakjöt sem hefur lengi verið eitt af helstu gæðamerkjum íslenskrar matarmenningar.
Í forrétti er léttreyktur þorskur borinn fram með sellerírót, bæði súrsaðri og maukaðri, ásamt grilluðu grænkáli. Réttinum fylgir létt froðukennd sósa úr kryddjurtum og hvítvíni.
Aðalrétturinn samanstendur af mysugljáðu og grilluðu lambafille með perlubyggi, ofnbökuðum gulrótum og villisvepparagúi. Með því er borið fram gnocchi í Feyki, auk kraftmikillar sósu úr lambasoði.
Eftirrétturinn er í léttari kantinum en þó með skýra íslenska skírskotun. Þar er skyr- og sítrónufrauð með hindberjakompotti og þurrkuðu lakkrísmarengsi, auk hindberja- og hvítsúkkulaðiköku með.
Verð fyrir þriggja rétta máltíð er 85 bandaríkjadalir á mann.
Flestir viðburðir hátíðarinnar eru gestum að kostnaðarlausu og markmiðið er að kynna íslenska menningu á lifandi og aðgengilegan hátt fyrir heimafólki í Seattle.
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni2 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn3 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Keppni6 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni










