Frétt
Innköllun á sviðasultu frá Kjarnafæði
Matvælastofnun varar við neyslu á ákveðnum framleiðslulotum af Lamba sviðasultu frá Kjarnafæði Norðlenska ehf. vegna gruns um að varan sé menguð af bakteríunni Listeria monocytogenes. Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar með best fyrir 3. – 7. janúar 2025, í samráði við Matvælastofnun. Auk þess fór fyrirtækið fram á að allri sviðasultu sem seld var til heilbrigðisstofnana í desember yrði fargað af öryggisástæðum.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Kjarnafæði LAMBA SVIÐASULTA
- Framleiðandi/fyrirtæki sem innkallar vöruna: Kjarnafæði Norðlenska ehf.
- Rekjanleikaupplýsingar: Best fyrir 03. – 07.01.2025
- Kælivara
- Dreifing:
- Fjöldi matvöruverslana um land allt: Bónus, Fjarðarkaup, Hagkaup, Kjörbúðin, Krambúð, Prís, Samkaup, Búðin Borgarfirði eystra, Ekran, Extra verslun, Gvendarkjör, Heimkaup, Hlíðarkaup, Jónsabúð, Kf. Vestur Húnvetninga, Melabúðin, Skerjakolla.
- Heilbrigðisstofnanir: Heilbrigðisstofnun Fjallabyggð, Heilbr.st. Suðurnesja Keflavík, Droplaugarstaðir, Sóltún, Heilbr.st Austurl. Seyðisfirði, Heilbrigðisstofnun Blönduós.
Listeria monocytogenes getur haft áhrif á heilsu neytenda. Neytendur eru beðnir um að neyta ekki þessarar vöru og skila henni í verslanir þar sem hún var keypt og fá endurgreiðslu.
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar1 dagur síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um




