Viðtöl, örfréttir & frumraun
Indverskur götumatur af bestu gerð – Myndir
Á Indlandi má finna fjölbreytta blöndu af matreiðslu og menningarlegum sérkennum. Margir segja að ein besta leiðin til að upplifa Indland er í gegnum matargerðina.
Indversk matargerð er byggð á heimspeki Ayurveda, sem undirstrikar mikilvægi jafnvægis líkama, huga og anda.
Einn af lykilþáttum indverskrar matreiðslu er notkun á kryddi eins og kardimommum, negul, túrmerik, kóríander, kanil, kúmeni og fenugreek.
Engifer, hvítlaukur, sinnepsfræ, kókos og jafnvel mynta er notað á sumum svæðum á Indlandi. Flestir kannast við „Garam Masala“ sem þýðir heit kryddblanda. Þetta er aðallega notað í karrý, þar sem blandan af kryddi ásamt kjöti og grænmeti skapar spennandi rétti.
Til gamans má geta þess að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun, 72 lönd, og lýst yfir því að árið 2023 er alþjóðlegt ár Hirsi.
Stuðningurinn er til þess að auka vitund almennings um heilsufarslegan ávinning af hirsi og til ræktunar við erfiðar aðstæður.
Myndir – Albert: „var vel undirbúin, skemmtileg og afslöppuð….“
Meðfylgjandi myndir eru frá þegar frú Ramya Shyam, eiginkona indverska sendiherrans á Íslandi, var með skemmtilegt námskeið á Salt Eldhúsinu fyrir nokkru.
Eftirfarandi er ummæli frá vefsíðu Salt Eldhússins um ástríðukokkinn Ramya Shyam, en þar skrifar Albert Eiríksson hjá alberteldar.is:
„Á Salt eldhúsi fór ég á stórfínt námskeið í indverskri matargerð. Ramya Shyam sendiherrafrú sá um kennsluna og stóð sig með stakri prýði – var vel undirbúin, skemmtileg og afslöppuð. Í lokin borðaði hópurinn saman matinn sem var eldaður. Mæli 100% með námskeiði hjá Ramya.“
Ramya Shyam mun halda viðburðinn „Millets Food Festival“ í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík á næstu dögum, en þar mun hún kynna hvernig hægt sé að nota Hirsi i öll mál og henni til aðstoðar er Yesmine Olsen.. Athugið að viðburðurinn er einungis fyrir boðsgesti, en myndir frá „Millets Food Festival“ má vænta hér á veitingageirinn.is eftir viðburðinn.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanArnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Keppni2 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Frétt4 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanJapanskt gin sækir fram þrátt fyrir samdrátt í áfengissölu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 klukkustundir síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum









