Viðtöl, örfréttir & frumraun
Handverksbjór og matarveisla á Hólum
Bjórhátíðin á Hólum verður haldin laugardaginn 6. júní næstkomandi frá klukkan 15 til 19 og stefnir allt í sannkallaða veislu fyrir áhugafólk um handverksbjór og mat.
Hátíðin hefur oft verið kölluð árshátíð handverksbruggaranna á Íslandi og þar gefst gestum kostur á að smakka úrvalsbjóra frá flestum brugghúsum landsins. Samhliða bjórnum verður einnig boðið upp á fjölbreytt matarúrval og hefur hátíðin á undanförnum árum þróast í að vera ekki síður matarveisla en bjórhátíð.
Fram kemur í kynningu hátíðarinnar að ekki þurfi að kaupa miða til að mæta á svæðið ef fólk ætlar eingöngu að gæða sér á matarbita sem verða í boði yfir daginn.
Miðasala er hafin á Tix.is og er aldurstakmark á hátíðina 20 ár.
Skipuleggjendur segja gesti velkomna heim að Hólum þar sem saman fari góður matur, íslenskt handverk og stemning í fallegu umhverfi.
-
Keppni7 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn1 dagur síðanLíður að jólum
-
Pistlar21 klukkustund síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




