Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

UPPFÆRT: Gunnar Karl tekur þátt í áhugaverðri matargerðarhátíð – Gestir skilja símana eftir við dularfulla hurð í skóginum

Birting:

þann

Stars du Nord 2022

Gunnar Karl Gíslason

Stars du Nord er árleg matargerðarhátíð sem haldin er á hverju ári á Norðurlöndunum. Þetta er annað árið sem hátíðin er haldin. Tilgangur hátíðarinnar er að kynna norræna matarhugmynd á heimsvísu.

Þemað í ár er „Staðbundið“ og verður hátíðin haldin í bænum Harads, nálægt Boden í Norður-Svíþjóð og er lögð áhersla á staðbundið hráefni til matargerðar. Michelin kokkarnir munu elda á veitingastaðnum MATERIA og er allt hráefni á matseðlinum fengið innan við 200 kílómetra frá hátíðinni og er eldað meðal annars á opnum eldi í skóginum.

Hver réttur verður paraður við vín frá Norðurlöndunum í umsjón Ellen Franzén, ein af bestu sommelier Norðurlandanna.  Ellen hreppti titilinn Vínþjónn Norðurlanda 2021, en keppnin var haldin hér á landi í fyrra, (sjá hér).

Stars du Nord 2022

Michelin kokkarnir sem taka þátt í Stars du Nord 2022 eru:

Ísland: Gunnar Karl Gíslason, Dill*
Finnland: Tommi Tuominen,Finnjävel* og Erik Mansikka, Kaskis*
Danmörk: Torsten Vildgaard, Noma***, Jonas Mikkelsen, Frederiksminde* og Christoffer Norton, Domestic*
Svíþjóð: Nicolai Tram, Knystaforsen* og Birgit Malmcrona, Naturaj
Noregur: Kristian Vagnen, Bare*

Stars du Nord 2022

Gestir munu skilja símana eftir við dularfulla hurð í skóginum.

Veitingastaðurinn MATERIA er í samstarfi við alþjóðlega hönnunarhótelið Treehotel og Arctic Bath. Það voru Arne Bergh og Jens Thoms Ivarsson sem leiddu hönnunarteymið og er MATERIA raun og veru framlenging náttúrunnar og er hluti af list, hönnun og létt brjálæði, en veitingastaðurinn hefur enga veggi. Gestir þurfa að skilja símana eftir við dularfulla hurð í skóginum.

Í samtali við veitingageirinn.is sögðu stjórnendur hátíðarinnar stefna að því að hátíðin verði haldin á öllum Norðurlöndunum.  Það verður spennandi að sjá hvaða staðsetning verður fyrir valinu hér á Íslandi.

Heimasíða: Stars du Nord

Uppfært 25 ágúst 2022

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna mun Gunnar Karl ekki vera með Stars du Nord í ár.

Myndir: aðsendar

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið