Freisting
Gordon Ramsey á Íslandi að smakka Lunda

Já kallinn er kominn á klakann og það í annað sinn, nú er hann hér til að taka upp efni í næstu seríu af F-word þáttunum og varð lundinn fyrir valinu hér á landi en serían gengur út á að hann tekur fyrir frekar óvenjulegt hráefni frá ýmsum stöðum.
Fyrir valinu var Lækjarbrekka www.laekjarbrekka.is til upptöku, en sá staður er einn af veitingastöðum borgarinnar sem býður upp á rétti úr lunda á matseðli sínum. Kokkarnir ræstir út snemma morguns til aðstoðar kallinum við upptökur, í forrétt reyktur og grafinn nú hvað haldið þið auðvitað Lundi og aðalréttur Lundabringur í Brennivínssósu, en báða þessa rétti má finna á sérréttarseðli staðarins.
Að sögn Kristófers Þórðarsonar Yfirmatreiðslu-manns staðarins, virkaði hann sem þægileg persóna með gott viðmót og yfirgaf staðinn sáttur.
Síðan lá leiðin til Vestmannaeyja þar sem hann og hans föruneyti ætlaði að freista þessa að veiða lunda og kemur það væntanlega í ljós þegar þátturinn verður sýndur, hvernig til tókst.
Í Eyjum voru það pikklað blómkál og Spergil sem voru í aðalhlutverki næringarinnar og voru þau orðin nokkuð svöng þegar í bæinn var komið.

Ristaðir humarhalar
Um kvöldið var hópurinn mættur í Grillið á Radisson SAS hótel Sögu í graut hjá Bjarna G. Kristinssonar og hans fólki. www.grillid.is
Matseðillinn var eftirfarandi að sögn Bjarna:
Forréttur
Ristaðir humarhalar með rauðvínsgljáa,vatnsmelónum og ætiþistlum
Aðalréttur
Nautalund og hægelduð rif með steinseljurót og madeira gljá
Að auki var ferskt salat borið á borð.
Ekki var annað að sjá en hópurinn væri ánægður með viðurgjörning Sögumanna.

Nautalund og hægelduð rif
Myndir af réttum: Bjarni Gunnar Kristinsson /Texti: Sverrir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Keppni1 dagur síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn



