Uncategorized
Góð afkoma hjá Carlsberg en samt hækkar bjórinn
Búast má við að einhverjir Danir reki upp ramakvein því að bjórframleiðandinn Carlsberg tilkynnti í dag að bjórinn myndi hækka á þessu ári.
Fram kemur í hálffimmfréttum Kaupþings að hækkandi heimsmarkaðsverð á nauðsynjahrávöru til bjórframleiðslu, aðallega humli og malti, sé meginástæða þess að bjórinn muni hækka. Bent er á að fyrirtækið hafi hækkað verðið nokkrum sinnum á síðasta ári, einnig vegna hækkunar á hrávöru. Fróðlegt verður að sjá hvort það sama komi til með að gerast hér á landi, en fyrir utan hækkanir á hráefnum hefur krónan veikst um tæp 10% á árinu,“ segir greiningardeild Kaupþings.
Í sömu frétt kemur fram að rekstrarhagnaður Carlsberg fyrir fjármagnsliði hafi verið 928 milljónir danskra króna sem er um fjórðungi betri niðurstaða en meðalspár greinenda gerðu ráð fyrir. Segir Kaupþing að þetta gefi ágæt fyrirheit um framtíðina en sem kunnugt er standa Carlsberg og Heineken að yfirtöku á brugghúsinu Scottish & Newcastle sem er með sterka stöðu á Bretlandseyjum og í Frakklandi.
Greint frá á Visir.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð



