Frétt
Gildandi sóttvarnaráðstafanir framlengdar um viku
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildistíma reglugerða um takmarkanir á samkomum og skólastarfi um eina viku, en að óbreyttu áttu þær að gilda til 5. maí. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis. Í minnisblaði til ráðherra segir hann allar líkur á því að forsendur verði fyrir því að ráðast í afléttingar á sóttvarnaráðstöfunum á næstu vikum.
Sjá einnig:
Tilslakanir á samkomutakmörkunum og í skólastarfi frá 15. apríl 2021
Sóttvarnalæknir bendir á að á gildistíma reglugerðanna hafi komið upp nokkrar hópsýkingar á suðvesturhorni landsins sem rekja megi til ferðamanna á landamærum sem ekki fóru að reglum um sóttkví og einangrun. Í framhaldi af því hafi verið ráðist í ýmsar aðgerðir til að minnka enn frekar hættuna á því að smit berist inn í landið. Hann segir vel hafa gengið að ná utan um hópsýkingar síðustu vikna með öflugri smitrakningu en telur ráðlegt að fara varlega í afléttingar á takmörkunum innanlands svo ekki komi bakslag varðandi útbreiðslu sýkinga.
Ástæða til bjartsýni
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir allt benda til þess að afléttingaráætlun stjórnvalda muni ganga eftir og að hægt verði að slaka verulega á samkomutakmörkunum fyrir miðjan mánuðinn.
„Það er full ástæða til bjartsýni. Vel gengur að kveða niður þær hópsýkingar sem upp hafa komið að undanförnu og síðast en ekki síst er rífandi gangur í bólusetningum og bjart framundan í þeim efnum,“
segir ráðherra.
Mikill gangur í bólusetningum
Í lok síðustu viku voru um 110.200 einstaklingar búnir að fá a.m.k. einn bóluefnaskammt og tæplega 36.380 einstaklingar voru fullbólusettir. Í þessari viku verða um 40.000 einstaklingar bólusettir og er það langstærsta bólusetningarvikan til þessa.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt3 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or7 klukkustundir síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Markaðurinn5 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt4 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni2 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi






