Viðtöl, örfréttir & frumraun
Forsetahjónin heiðursgestir á Fiskideginum Mikla
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid heiðra Fiskidaginn mikla og gesti hans í ár með nærveru sinni. Þau taka bæði þátt í dagskrá samkomunnar.
Eliza flytur ávarp á vináttukeðjunni, hinni formlegu setningarathöfn Fiskidagsins, neðan við Dalvíkurkirkju að lokinni messu kl. 18 föstudaginn 11. ágúst.
Forsetinn verður ræðumaður dagsins á hátíðarsviði Fiskidagsins mikla kl. 14:15 laugardaginn 12. ágúst.

Guðni Th. Jóhannesson var heiðursgestur Fiskidagsins mikla árið 2016 og hafði þá einungis gegnt embætti forseta Íslands í fjóra sólarhringa þegar leið þeirra hjóna lá norður í Dalvíkurbyggð og fjörið þar.
Guðni Th. Jóhannesson var heiðursgestur Fiskidagsins mikla árið 2016 og hafði þá einungis gegnt embætti forseta Íslands í fjóra sólarhringa þegar leið þeirra hjóna lá norður í Dalvíkurbyggð og fjörið þar. Hann tók við embættinu mánudaginn 1. ágúst 2016 við athöfn í Alþingishúsinu og forsetahjónin voru síðan hyllt af miklum mannfjölda á Austurvelli.
Föstudaginn 5. ágúst voru forsetahjónin við Fiskidagsmessu í Dalvíkurkirkju og hann ávarpaði síðan gesti vináttukeðjunnar í brakandi blíðu neðan við kirkjuna. Gríðarlegur mannfjöldi hlýddi á ávarpið og fylgdist með af áhuga enda höfðu fæstir viðstaddra séð nýja þjóðhöfðingjann í eigin persónu eða hlýtt á mál hans eftir að hann tók við embættinu.
Forsetahjónin og fylgdarlið gengu um Dalvík að kvöldi föstudagsins, þáðu súpu hér og þar og ræddu við fólk á förnum vegi. Daginn eftir fóru þau um hátíðarsvæðið við höfnina. Þeim þótti auðheyrilega mikið til koma að kynnast öllu því sem fyrir augu og eyru bar í heimsókninni.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Markaðurinn5 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Frétt2 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Markaðurinn5 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
-
Markaðurinn5 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka
-
Keppni2 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu




