Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Fljótandi hótel og veitingahús í Hafnarfjarðarhöfn
Skipið sem sótt hefur verið um leyfi fyrir í Hafnarfjarðarhöfn og hýsir bæði hótel og veitingahús er gríðarlegt að stærð eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Fréttablaðið greinir frá þessum fyrirætlunum í dag.
Forsvarsmenn Veitingalistar, sem standa að verkefninu, segist vera að láta breyta skipinu enn frekar en gert var við endurnýjun árið 2011.
Meðal annars verður skipt um teppi, rúm og náttborð ásamt því sem Led-lýsingu verður komið fyrir um borð. Þetta eigi að breyta skipinu úr tveggja stjörnu í þriggja stjörnu aðstöðu.
Gólfflötur undir þaki skipsins er alls um 1.000 metrar.
- Úlfar Eysteinsson á Þremur frökkum mun sjá um rekstur veitingastaðarins um borð.
- 130 manna veitingstaður og bar og fundarherbergi eru um borð í skipinu.
- 62 herbergi eru í skipinu.
Svona skip kallast River Cruise og eru ekki skip sem smíðuð eru til að sigla um úthöfin heldur er gert ráð fyrir að þau liggi við höfn.
Í Fréttablaðinu í dag segir Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar að bærinn sé að skoða málið með jákvæðum huga.
Greint frá í Fréttablaðinu.
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn4 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Markaðurinn6 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni
-
Markaðurinn4 dagar síðanEitt elsta og þekktasta vörumerki landsins hefur nýjan kafla
-
Markaðurinn4 dagar síðanTilbúnar pizzur í gastróstærð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni
-
Markaðurinn6 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu
-
Markaðurinn3 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á






