Freisting
Fiskmarkaðurinn annar af tveimur beztu veitingastöðum landsins

Jónas Kristjánsson ættu margir í veitingageiranum að kannast við, en hann hefur nú ekki sparað stóru orðin þegar kemur að hans áliti á veitingastöðum bæjarins. Að þessu sinni er það Fiskimarkaðurinn sem fer í úrbeiningu hjá kallinum, en hann er greinilega ánægður með Hrefnu Rósu J. Sætran yfirmatreiðslumann og eiganda Fiskmarkaðarins og hennar keppnislið.
Jónas talar um að Fiskmarkaðurinn sé annar af tveimur beztu veitingastöðum landsins, en grennslast var fyrir um hver væri besti veitingastaður að hans mati, þá er það Holtið sem heldur titlinum bezti veitingastaðurinn.
Eftirfarandi er álit Jónasar á Fiskmarkaðnum:
Japanskt ævintýri
Fiskmarkaðurinn er japanskt matarævintýri Ísafoldarhússins við Aðalstræti. Hann er annar af tveimur beztu veitingastöðum landsins, öðruvísi en aðrir öndvegisstaðir. Innréttingar eru þrauthannaðar með speglaverki í japönskum skógarstíl með þungum tréborðum á trégólfi. Þarna prófaði ég 3.900 króna smakk-matseðil í hádeginu og var í hálfan annan tíma að komast gegnum hann. Smakkseðillinn kostar 6.900 krónur á kvöldin. Tvírétta af matseðli í hádegi kostar 3.350 krónur að meðaltali og þríréttað að kvöldi kostar 8.000 krónur að meðaltali. Fiskmarkaðurinn er kjörinn miðbæjarstaður til hádegisverðar.
Röð af réttum
Á Fiskmarkaðinum í Aðalstræti byrjaði hádegisveizlan með krónhirti og okra á stökku rækjubrauði austrænu. Síðan kom rauður linkrabbi, djúpsteiktur í tempura, og smokkfiskur í jalapeno-piparsósu. Þriðji réttur var furðulega fagurt klettasalat með mangó og klementínum. Næst kom hrár fiskur, maki-rúlla með laxahrognum, smálúða sashimi, svo og barri og smokkfiskur á sushi. Í aðalrétt fékk ég viðargrillaðan lax í koparlaufi með risotto-pylsu, sveppum og jarðarberjum. Seinni aðalrétturinn fólst í tvenns konar skötusel. Að lokum birtist brenndur búðingur og súkkulaðiís. Ég stundi.
Menningarmiðstöðin
Helzti kostur Fiskmarkaðarins er, að maturinn er ekki nýklassískt franskur. Allir toppstaðir og flestir miðjustaðir landsins eru nýklassískt franskir. Hótelskólinn kennir slíka matreiðslu og allur þorri kokka vill elda upp á þau býti. Hér er ruðst út úr boxinu, horft til þess lands, sem gengur næst Frakklandi í heiminum að matargerðarlist. Japan er hér á landi einkum þekkt fyrir sushi, sashimi og maki, hráan fisk á ýmsa vísu. Að baki er aldagömul og þróuð matargerðarlist, sem alltaf hefur lagt ofuráherzlu á gæði umfram magn. Þessi fulltrúi hennar er núna ein mesta menningarmiðstöð landsins.
Greint frá á Jonas.is
Mynd: fiskmarkadurinn.is | [email protected]
-
Íslandsmót barþjóna5 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Frétt5 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind
-
Markaðurinn6 dagar síðanPistasíu- og sítrónukaka sem bráðnar í munni



