Frétt
Danól innkallar hrökkbrauð og kex
Danól, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Hrökkbrauð – Jurtir & sjávarsalt og Crunchy Crackers – Herbs & Sea Salt frá Sigdal Bakeri.
Ástæða innköllunar er að varnarefnið ethylene oxíð var notað við framleiðslu á jurtablöndu (blóðberg/óreganó) sem síðan var notuð við framleiðslu á vörunum. Ethylene oxíð er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu.
Hver er hættan?
Ethylene oxíð hefur ekki bráða eiturvirkni en efnið hefur erfðaeituráhrif (getur skaðað erfðaefnið) og getur því haft skaðleg áhrif á heilsu.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Sigdal Bakeri
- Vöruheiti: Hrökkbrauð – Jurtir & sjávarsalt
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetningar: Milli 06.01.2022 og 18.02.2022 og milli 26.03.2022 og 18.07.2022
- Strikamerki: 7071848004492
- Framleiðandi: Bakeverket AS
- Framleiðsluland: Noregur
- Vörumerki: Sigdal Bakeri
- Vöruheiti: Crunchy Crackers – Herbs & Sea Salt
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetningar: Milli 06.01.2022 og 18.02.2022 og milli 26.03.2022 og 18.07.2022
- Strikamerki: 7071848025077
- Framleiðandi: Bakeverket AS
- Dreifing: Verslanir um land allt
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreind matvæli eru beðnir um að neyta þeirra ekki og farga en einnig er hægt að skila þeim í þeirri verslun sem þau voru keypt í gegn endurgreiðslu eða skiptum á samskonar vöru.
Mynd: Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or7 klukkustundir síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or3 klukkustundir síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or12 klukkustundir síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Markaðurinn7 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir






