Frétt
COVID-19: Afnám sóttkvíar, fjöldatakmörk í 200 manns, 1.000 manna viðburðir heimilaðir….
Hátt í 10.000 manns losna undan sóttkví í dag þegar reglur um sóttkví falla brott með reglugerð. Á miðnætti tekur svo gildi reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur í sér tilslakanir, líkt og nánar er tíundað hér að neðan.
Í dag verður birt reglugerð sem felur í sér afnám sóttkvíar vegna smita innanlands. Þessar breytingar taka gildi um leið og reglugerðin birtist í Stjórnartíðindum í dag. Þeir sem þegar eru í sóttkví þurfa því ekki að mæta í sýnatöku til að losna og á það einnig við um þá sem áttu að fara í sýnatöku í dag. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar. Reglur um einangrun verða óbreyttar.
Reglur um þá sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.
Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð um takmörkun á samkomum sem gildir til og með 25. febrúar. Jafnframt fellur brott sérstök reglugerð um takmörkun á skólastarfi.
Helstu breytingar á samkomutakmörkunum eru eftirfarandi:
- Almennar fjöldatakmarkanir: Fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla brott.
- Verslanir: Fjöldatakmarkanir í verslunum falla brott.
- Fjölmennir viðburðir: Heimilt verður að halda 1.000 manna viðburði að því tilskildu að allir sitji í sæti og beri grímu. Heimilt er að halda hlé á viðburðum og selja veitingar án takmarkana.
- Grímunotkun: Aðeins verður skylt að bera grímu ef ekki er hægt að viðhafa 1 metra reglu.
- Hreyfing: Sund- og líkamsræktarstöðvum sem og skíðasvæðum er heimilt að taka á móti gestum með fullum afköstum.
- Íþróttakeppnir og -æfingar: Keppnir og æfingar heimilar með 200 manns í hólfi.
- Skólar: Reglugerð um takmörkun á skólastarfi fellur brott. Þar með gilda almennar reglur um samkomutakmarkanir í skólum, þó með undanteknum til rýmkunar.
- Skólaskemmtanir: Heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
- Staðir með vínveitingaleyfi: Opnunartími lengdur um eina klukkustund, þ.e. heimilt að taka á móti gestum til miðnættis en allir þurfa að hafa yfirgefið staðinn kl. 01.00.
Mynd: úr safni
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Frétt7 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn3 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila






