Markaðurinn
Carlsberg til Ölgerðarinnar – Er nú 5% og með áherslu á gæði
Þann 1. Janúar s.l. færði Carlsberg sig yfir til Ölgerðarinnar. Atli Þór Hergeirsson vörumerkjastjóri Carlsberg segir að jafnframt hafi verið gerðar breytingar á vökvanum og því megi segja að ný og betrum bætt útgáfa af Carlsberg sé fædd.
„Víðast hvar er Carlsberg ekki 4,5% eins og tíðkast hefur hér á landi í langan tíma heldur er hann 5% og hefur Ölgerðin nú bruggað Carlsberg þannig og sett hann á markað. Carlsberg verður því nú líkt og á alþjóðamörkuðum.“
Atli bætir við að á þennan hátt hafi bjórinn öðlast mun dýpri fyllingu auk þess að gefa þéttara og kraftmeira bragð.
„Saga Carlsberg með okkur íslendingum nær gríðarlega langt aftur og var Carlsberg einn allra vinsælasti bjórinn á íslandi fyrir áfengisbannið 1915. Gamli-Carlsberg, eins og hann var kallaður þótti sá allra fínasti eins og kemur t.d. fram í drykkjuvísum eftir Hannes Hafstein og skal engann undra. Útkoman hjá okkur í Ölgerðinni er stórkostleg og erum við afar stolt af því að kynna Carlsberg upp á nýtt fyrir íslendingum. Svo sannarlega nýtt upphaf með áherslu á gæðin og þessa löngu sögu.“
Dreifing fyrstu framleiðslu Ölgerðarinnar á Carlsberg er í fullum gangi núna á veitingamarkaði og mun núverandi útgáfa sem til er í Vínbúðunum einnig víkja fyrir auknum gæðum á komandi dögum og vikum en Carlsberg frá Ölgerðinni fer í dreifingu í Vínbúðirnar líklega strax eftir komandi helgi.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Frétt6 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Markaðurinn3 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt1 dagur síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg




