Uppskriftir
Bakaðir kleinuhringir með hlynsírópsgljáa
Þessir kleinuhringir eru sjúklega góðir! Kryddaðir með smá brúnkökukryddi sem gerir þá svolítið jólalega og svo hjúpaðir þessu ómótstæðilega hlynsíróps glaze’i með ekta vanillu.
Í alvöru, það er ekki eftir neinu að bíða! Farðu að baka!
Kleinuhringir, 12-14 stk
Hveiti, 180 g
Lyftiduft, 1,5 tsk
Matarsódi, 0,5 tsk
Salt, 0,25 tsk
Brúnkökukrydd, 1 tsk
Mjólk, 80 ml
Jógúrt, 80 ml
Smjör, 60 g
Vanilludropar, 2 tsk
Egg, 1 stk / Stórt
Púðursykur, 120 g
Pískið saman hveiti, lyftiduft, matarsóda, salt og brúnkökukrydd í stórri skál.
Bræðið smjörið og látið kólna smá. Pískið saman mjólk, jógúrt, bráðið smjör, vanilludropa, egg og púðursykur.
Blandið blautblöndunni saman við þurrefnablönduna með sleikju þar til allt hefur samlagast.
Spreyið eða smyrjið kleinuhringjaform með olíu.
Færið deigið í sprautupoka eða t.d. stóran samlokupoka og klippið á einn endann. Fyllið formin tæplega 3/4 leið upp af deigi og bakið í 10-11 mín í miðjum ofni.
Látið kólna í nokkrar mín áður en kleinuhringirnir eru fjarlægðir úr forminu.
Hlynsíróps „glaze“ gljái
Smjör, 60 g
Rjómi, 1 msk
Hlynsíróp. 60 ml
Vanillustöng, 1 stk
Flórsykur, 180 g
Bræðið smjör í potti við vægan hita. Skerið vanillustöng í tvennt og skafið fræin innan úr. Bætið vanillufræjum, rjóma og hlynsírópi út í og og hrærið þar til allt hefur samlagast.
Hrærið flórsykur saman við þar til allt hefur samlagast og slökkvið á hitanum.
Dífið kleinuhringjunum ofan í glaze’ið og setjið svo á vírgrind í 10 mín þar til glaze’ið harðnar.
Uppskrift og mynd: Matur og Myndir | Snorri Guðmundsson
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanArnór Ingi og fjölskylda opna Laut í Norræna húsinu – sjáðu matseðilinn hér
-
Markaðurinn4 dagar síðanVel heppnaður haustfagnaður hjá John Lindsay
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanKokkakonur boða til stofnfundar í Bryggjuhúsinu
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi hæfileikar verðlaunaðir í Eftirrétti ársins og Konfektmola ársins 2026
-
Keppni2 dagar síðanLisa Dagnäs valin konditor ársins í Svíþjóð 2026
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFramtíðarkokkar láta ljós sitt skína
-
Frétt3 dagar síðanHraðlestin kveður Hverfisgötu eftir 23 ár
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞað sem getur vantað í ferilskrá frábærs umsækjanda



