Markaðurinn
Umhverfisvænasta veganmjólkin mætt á Joe & The Juice
Eftirlætisjurtamjólk margra er nú mætt til leiks á Joe & The Juice. Sproud jurtamjólkin hefur notið fádæma vinsælda hér á landi en hún er unnin úr hágæða baunapróteini. Hún hefur verið í sérstöku uppáhaldi hjá kaffibarþjónum enda loksins komin jurtamjólk þar sem bragðgæði, hollusta og virðing fyrir umhverfinu haldast í hendur.
„Sú staðreynd að Sproud er unnin úr baunum, sem eru í grunninn próteinríkar, sykur- og kolvetnasnauðar skilar sér í þessari silkimjúku og ljúffengu jurtamjólk,“
segir Sólrún María Reginsdóttir hjá Akkúrat sem flytur Sproud inn.
Magnús Gunnarsson, rekstrarstjóri Joe & The Juice, segir Sproud og samstarfið við Akkúrat gera þeim kleift að gera góða drykki enn betri og hollari.
„Joe & The Juice úti í heimi hefur verið að nota Sproud Barista jurtamjókina undanfarna mánuði með góðum og jákvæðum undirtektum frá viðskiptavinum. Því lá beinast við að við myndum gera slíkt hið sama og bjóða upp á nýjan valmöguleika í jurtamjólk í okkar drykkjum,“
segir Magnús. Hann segir Sproud ekki aðeins bragðast virkilega vel í kaffinu heldur passi hún einstaklega vel í vegan sjeikana.
„Svo skemmir það ekki fyrir að hún inniheldur viðbætt steinefni og vítamín og aðeins 1/3 af kolvetnamagninu í Barista haframjólk.“
Það sem gerir Sproud jurtamjólkina sérstaklega áhugaverða er hið einkar hversdagslega hráefni sem hún er unnin úr – baunaspírur. Baunaræktun krefst afar lítillar vatns- og orkunotkunar, ef miðað er við ræktun annarra jurtamjólkurhráefna á borð við soja og hafra. Baunin er þar að auki svolítil ofurhetja því baunaplöntur auka gæði og frjósemi jarðvegsins þar sem þær eru ræktaðar.
„Okkur þykir ótrúlega skemmtilegt að fara í þetta samstarf með Joe & The Juice sem kom fyrst fram með góðan skyndibita sem hugar á sama tíma að gæðum, bragði, hollustu og umhverfi. Það er líka alltaf svo skemmtilegt að fara til þeirra, sem gerir Joe & The Juice að fullkomnum stað fyrir Sproud,“
segir Sólrún að lokum.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndir: Veislusýning Múlabergs fór fram úr væntingum
-
Keppni4 dagar síðanSkráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMyndir: Bakaradeildin í Hótel- og matvælaskólanum tók þátt í Tyllidögum
-
Frétt5 dagar síðanGrunur um salmonellu í kjúklingalærum frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanDuck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
-
Markaðurinn1 dagur síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Food & fun6 dagar síðanFood & Fun 2026: Allar bókanir fara fram á Dineout í ár





