Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Ný mathöll opnar á Ásbrú í vor
Ný mathöll opnar á Ásbrú í vor í húsnæði sem á tímum varnarliðsins var veitinga og skemmtistaðurinn „Top of the Rock“.
Að sögn Kjartans Eiríkssonar sem er í forsvari fyrir félaginu ToRo sem stendur að verkefninu er búið er að ganga frá samningum við sex af átta veitingaaðilum og verða þeir tilkynntir á næstunni, að því er fram kemur á vf.is.
Má þar m.a. nefna aðila sem bjóða upp á japanskan, indverskan og ítalskan mat.
„Enn eru tveir staðir lausir og því er tækifæri fyrir áhugasama aðila að koma og ræða við okkur. Við höfum mikinn áhuga á að ræða við aðila sem hafa metnaðarfullar hugmyndir að slíkum rekstri, t.d. varðandi vandaða hamborgara, heilsurétti o.fl. Markmið er að gæðalega verði mathöllin á pari við það sem best þekkist hér á landi og taki einnig mið af þeirri þróun sem á sér stað í slíkum rekstri í heiminum,“
segir Kjartan í samtali við Víkurfréttir.

Mathöllin Völlum verður staðsett í húsnæði sem á tímum varnarliðsins var veitinga og skemmtistaðurinn „Top of the Rock“.
Húsnæðinu verður skipt upp í þrjá hluta undir mathöll, framleiðslueldhús og annan rekstur. Búið er að hanna endurbætur hússins og framkvæma stóran hluta þeirra.
„Þá er gert ráð fyrir afþreyingarrekstri í öðrum hluta hússins sem styður við og styrkir rekstur mathallarinnar. Hvað þennan þátt varðar þá eru spennandi viðræður í gangi við reynslumikla aðila,“
segir Kjartan en meðeigendur hans í ToRo eru bræðurnir Sverrir og Sævar Sverrissynir.
Myndir: vf.is
-
Frétt7 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn2 dagar síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember




