Markaðurinn
Fyrsti matvælaframleiðandi í heiminum til að hljóta ISO 26000 vottun
Sproud, sænski framleiðandi samnefndrar jurtamjólkur úr baunaspírum, tilkynnti á dögunum að þau eru fyrsti matvælaframleiðandi í heiminum til að hljóta ISO 26000 vottun, alþjóðlega staðlavottun þegar kemur að sjálfbærni ábyrgð fyrirtækja.
Vottunarferlið var unnið af þriðja aðila sem tók fyrir sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð Sproud, meðal annars með eftirliti á vinnslusvæðinu sjálfu. Sem hluti af vottunarferlinu hefur Sproud tekið fyrir virðiskeðju framleiðslunnar, hvernig hún samræmist Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og hvernig Sproud getur haft sem mest áhrif til hins betra í því tilliti.
Sproud var stofnað í Malmö í Svíþjóð árið 2018 og nú eru vörur fyrirtækisins fáanlegar í 30 löndum um allan heim. Með höfuðstöðvar sínar í Malmö og aðra skrifstofu í London, starfa 15 manns hjá fyrirtækinu.
„Við erum afar stolt af því að vinnan okkar er að fá vottun og viðurkenningu, þar sem sjálfbærni er rótgróinn þáttur í okkar viðskiptamódeli.
Við höldum áfram að helga okkur framtíðarstarfinu þar sem plöntuafurðir og sjálfbærni eru í fyrirrúmi og þessi vottun er vitnisburður um þá skuldbindingu okkar,“
segir Sara Berger framkvæmdastjóri Sproud.
Framleiðsla matvæla með lægsta mögulega kolefnissporinu er grundvallarþáttur í starfsemi Sproud. Fyrir gagnsæi og nákvæmar mælingar hefur Sproud verið í samstarfi við CarbonCloud sem sérhæfir sig í greiningu á kolefnisspori vörutegunda.
Fyrir Sproud þýðir þetta greining á öllum hlutum framleiðsluferlisins, frá ræktunarstöðum og þeim hráefnum sem notuð eru og alla leið í hillur verslananna. Gögn um kolefnisspor Sproud eru uppfærð á tveggja mánaða fresti á CarbonCloud svo þar má ávallt finna nýjustu upplýsingar og tölur.
Kolefnisspor vöruflokka Sproud er á bilinu 0.26-0.38 sem er lægra en allra annarra plöntumjólkurdrykkja sem fyrirfinnast á markaðinum.
Lykillinn að lágu kolefnisspori Sproud er framleiðsla úr jurtaríkinu, baunaspírurnar sem uppistöðuhráefni og ræktun sem krefst minna landsvæðis og vatnsnotkunar en til dæmis hafra-, soja- og hneturæktun. Þar að auki eru TetraPak umbúðirnar að langstærstum hluta, 88%, búnar til úr hráefni úr plönturíkinu, varan hefur 365 daga geymsluþol og ekki er þörf á kæligeymslu við flutning og dreifingu auk þess sem varan er framleidd innan Evrópu.
Samstarfsaðili Sproud á Íslandi er Akkúrat og Sproud fæst í Krónunni, Melabúðinni og Veganbúðinni.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn3 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn2 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt1 dagur síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni1 dagur síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí




