Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Verður þú Grillmeistarinn 2023?

Birting:

þann

Fjölskylduhátíð Kótelettunar

Dómarar að störfum frá síðustu keppni.
F.v. Svavar Halldórsson og Jói Fel

Fjölskylduhátíð Kótelettunar verður haldin í 13. sinn á Selfossi dagana 6. – 9. júlí. Nú leita aðstandendur hátíðarinnar eftir grillmeisturum til að taka þátt í keppni sem haldin er í samstarfi við BBQ Kónginn.

Keppt verður bæði í flokki áhugamanna og fagaðila þar sem 4 keppendur etja kappi í hvorum flokki.

Vinningarnir eru ekki af verri endanum og fá sigurvegararnir í hvorum flokki fyrir sig, þar á meðal 100.000kr í verðlaunafé.

Allir keppendur verða svo að sjálfsögðu leystir út með glæsilegum þáttökuverðlaunum.

Keppnin fer fram á miðbæjartúninu á Selfossi laugardaginn 8 júlí og hefst kl 13:30.

Keppnisreglur:

  • Grilla má kjöt eða fisk og ekki skemmir að hafa gott meðlæti.
  • Keppendur mega undirbúa réttinn eins lengi og þeir vilja áður en keppnin hefst en keppendur byrja allir að grilla á sama tíma.
  • Keppendur fá hálftíma til að grilla og skila tilbúnum diski til dómara (1 stk.).
  • Grilla þarf á grillum frá Weber á Íslandi sem verða keppendum innan handa ásamt áhöldum.

Dæmt verður eftir:

  • Áferð og bragði réttar.
  • Notkun á hráefni.
  • Framsetningu.
  • Almennum Léttleika.

Skilmálar:

  • Keppendur gefa leyfi til myndatöku og umfjöllun í tengslum við keppnina. Keppendur verða að vera í góðu skapi og stuði!

Nánari upplýsingar og skráning er á [email protected]

Mynd: kotelettan.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið