Pistlar
Takk fyrir ekkert
Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT, lýsa yfir gríðarlegum vonbrigðum með fyrirhugaða hækkun áfengisgjalda í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2023. Það er með ólíkindum að hæstu áfengisskattar í Evrópu dugi ekki sitjandi ríkisstjórn, sem í orði kveðst styðja atvinnulífið í allri sinni fjölbreytni. Í því samhengi er boðuð 7,7% hækkun á áfengisgjaldi með öllu ólíðandi, enda mun hún annað hvort koma úr tómum vasa veitingamanna eða fara út í verðlagið, sem aftur stuðlar að hærra verðlagi og viðvarandi verðbólgu.
Veitingageirinn hefur barist í bökkum síðastliðin ár. Há opinber gjöld og óhagstæðir kjarasamningar hafa haldið greininni í spennitreyju um árabil og Covid-aðgerðir stjórnvalda riðu mörgum fyrirtækjum að fullu.
Andvaka veitingamenn
Framundan er dimmur vetur og nýkynnt fjárlagafrumvarp varpar ekki ljósi inn í hann. Þvert á móti má ætla af því, að nú eigi kné að fylgja kviði og áfram skuli níðst á atvinnugrein sem er illa löskuð. A.m.k. setur veitingamenn hljóða við skilaboðin frá hinu opinbera, enda felast í þeim brotin loforð og dapurlega sýn sem heldur vöku fyrir veitingamönnum. Að óbreyttu er ljóst að afleiðingarnar af hækkandi álögum verða alvarlegar og veitingastöðum mun fækka.
Vilji stjórnvalda til að leggja auknar byrðar á greinina bætist ofan á launaþróun sem hið opinbera hefur leitt, aukinn kostnað vegna verðbólgu sem hið opinbera hefur ekki brugðist við og aukin umsvif eftirlitsgeirans sem hið opinbera rekur og rukkar hressilega fyrir. Allt ofangreint kyndir undir áframhaldandi verðbólgu og takmarkar möguleika atvinnurekenda að skila viðunandi rekstrarárangri.
Megum við ekki bara reka fyrirtækin okkar í friði?
Á tyllidögum segjumst við búa í frjálsu hagkerfi, þar sem framboð, eftirspurn og frammistaða fyrirtækja ræður mestu um afkomuna. Raunin er hins vegar sú, að samfélaginu er miðstýrt úr hófi og atvinnufrelsi er í raun takmarkað vegna inngrips stjórnvalda, verðhækkana og afskipta sem hafa skaðleg áhrif fyrir einkarekin fyrirtæki. Á sama tíma stækkar báknið, starfsfólki fjölgar, boðleiðir lengjast og tíminn sem fer í að leysa einföld mál.
Sumarið gekk vel víða, með auknum fjölda ferðamanna sem koma með nauðsynlegan gjaldeyri inn í landi. Mörgum ferðamanninum þykir hins vegar nóg um verðlagið hér á Fróni, sem er með því hæsta í heimi – ekki síst á áfengum drykkjum. Veruleg hækkun á opinberum áfengisgjöldum er síst til þess fallin að auka samkeppnishæfni Íslands eða stuðla að auknum fjölda ferðamanna. Þvert á móti er hún fráhrindandi og minnkar aðdráttarafl okkar í alþjóðlegu samhengi.
Veitingageirinn vill leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Við bjóðum góðan mat og góða drykki, sköpum þúsundir starfa og gegnum mikilvægu hlutverki við mótun menningu lands og þjóðar. Við höfum þurft að þola margt á undanförnum misserum en nú er nóg komið. Við treystum því, að Alþingi láti óréttlætið ekki fram ganga og hafni auknum álögum á greinina.
Höfundur er Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóri SVEIT
-
Frétt6 dagar síðanKrydd og Kavíar taka að sér allt að 1000 máltíðir á dag fyrir Reykjavíkurborg
-
Markaðurinn4 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Frétt3 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn3 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn4 dagar síðanMS kynnir tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu í byrjun mars
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Frétt4 dagar síðanFerskur kjúklingur tekinn úr sölu í nokkrum Bónusverslunum
-
Frétt5 dagar síðanMichelin snýr aftur til Las Vegas eftir 17 ára hlé





