Frétt
Myndir frá jólafundi KM | Guðni Ágústsson átti sviðið
Jólafundur Klúbbs Matreiðslumeistara var haldin 3. desember s.l. í Perlunni og hófst hann á fordrykk á jarðhæð Perlunnar. Jólafundur klúbbsins er alltaf með mökum og kokkagallinn hvíldur, svo leið að því að fólki var boðið að halda upp á 5. hæð þar sem skyldi snætt Jólahlaðborð staðarins.
- Fyrir miðju Jakob Magnússon og Valgerður Jóhannsdóttir
MjólkurÁrni og hans menn í viðburðarnefndinni sá um skipulagningu kvöldsins og var kynnt að Guðni Ágústsson hinn eini sanni myndi kynna bók sína, Séra Sigurður Arnarsson prestur í Kópavogskirkju var með erindi, en til gamans má geta þess að Sigurður vann á sínum yngri árum sem næturvörður á Hótel Sögu, einnig að þeir félagar Davíð og Sigurður myndu syngja nokkur lög, og að yrði veglegt happdrætti.
Svo hófst borðhaldið og held ég að flestir hafi verið sáttir með viður- gjörninginn, og hann hafi verið Perlumönnum til framdráttar.
Guðni átti sviðið eftir matinn og verður að viðurkennast að það er svolítið erfitt að borða sig saddan og næstu mínútu að hlæja sig til óbóta, presturinn kom á óvart og naut sviðsljósins í botn og ekki var við öðru að búast frá þeim söngfélögum en að þeir brilleruðu einsog vanalega.
Svo var komið að happdrættinu og var það óvenju veglegt, sökum þess að ágóði af sölu miða skyldu renna til líknarmála.
Mæting var mjög góð og heyrðist talan 80 nefnd.
Viðburðarnefndin hafði skilað góðu kvöldi og allir héldu til síns heima ánægðir með góða kvöldstund, í góðra vina hópi.
Myndir: Guðjón Þór Steinsson
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn4 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Keppni19 klukkustundir síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Markaðurinn5 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina

































































