Keppni
Callebaut keppni í súkkulaði sýningarstykkjum | Skráning hafin
Nú er komið að skráningu í “
The Nordic Championship in Showpiece” sem haldin verður af Callebaut á matvælasýningunni í Herning í Danmörku 16.-18. mars á næsta ári.
Callebaut á veg og vanda að þessari sýningu, sem verður haldinn í anda “The World Champion Masters” (WCM) sem Freisting.is fjallaði um þegar Ásgeir Sandholt fór til Parísar 2011.
Reglurnar eru einfaldar, skv meðfylgjandi skjali en þá á sýningarstykkið að vera 1 metri á hæð, auðvitað lagað úr súkkulaði, en auk þess má nota kakósmjör, kakóduft og fleiri kakóbaunaafurðir.
Sýningarstykkið má koma með fullklárað að heiman, en skilyrði er að það sé sett saman á staðnum og keppendur verða að koma með öll áhöld með sér á staðinn.
Þema sýningarstykkjanna 2014 er Norrænir víkingar (The Nordic Vikings).
Skráning fer fram hjá Gulla Vals hjá Sælkeradreifingu, sem er umboðsaðili Callebaut á Íslandi, [email protected]
Til fróðleiks, þá er hægt að skoða myndir frá heimsmeistarakeppninni WCM 2011 með því að smella hér.
Mynd: Matthías
-
Markaðurinn5 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn6 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Markaðurinn4 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt3 dagar síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni4 dagar síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Markaðurinn4 dagar síðanYfirkokkur/Verkstjóri óskast
-
Markaðurinn4 dagar síðanNóg um að vera hjá ÓJ&K-ÍSAM í Korputorginu




