Frétt
Vanmerktir ofnæmisvaldar í samlokum Dagnýjar og co
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af samlokum frá vörumerkinu Dagnýju og co. Merkimiðum var víxlað með þeim afleiðingum að hvorug varan er með rétta innihaldslýsingu, m.a. á ofnæmis- og óþolsvöldum, auk þess að önnur er ranglega merkt VEGAN. Fyrirtækið Álfsaga ehf. er að innkalla vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi lotu:
- Vöruheiti: Ranglega merkt „Veggies with avocado humus“
- Ofnæmis- og óþolsvaldar í ranglega merktri vöru: sesamfræ, sojakyrni, hafraflögur, egg, mjólkurafurðir og sinnepsduft
- Lotunúmer: L346
- Síðasti notkunardagur: 15.12.19
- Vöruheiti: Ranglega merkt „Reykjavik fitness (Veggie)“
- Ofnæmis- og óþolsvaldar í ranglega merktri vöru: hnetusmjör
- Lotunúmer: L346
- Síðasti notkunardagur: 15.12.19
- Framleiðandi: Álfasaga ehf., Eyrartröð 2A, 220 Hafnarfirði
Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru með ofnæmi. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og er með ofnæmi eða óþol eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í verslunina þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir fyrirtækið Álfasaga ehf. í síma 553 4060.
Mynd: dagnyogco.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanEfnisstraumar á veitingageirinn.is
-
Keppni4 dagar síðanFremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSöfnuðu rúmlega þremur milljónum fyrir fjölskyldur í Nepal
-
Markaðurinn6 dagar síðanOlifa og Danól hefja samstarf um ítölsk gæðahráefni fyrir fageldhús
-
Markaðurinn6 dagar síðanFastus auglýsir eftir söluráðgjafa stóreldhúsa
-
Vín, drykkir og keppni15 klukkustundir síðanNÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
-
Keppni21 klukkustund síðanManuel Schembri og Oddný Ingólfsdóttir keppa fyrir Íslands hönd á morgun
-
Markaðurinn2 dagar síðanSilkimjúk humarbisque fyrir sælkera




