Pistlar
Þróun á fræga réttinum: Þorskhausinn
Þorskhausinn er sá réttur sem mér þykir einna vænst um að hafa skapað. Hann vinnur á og hefur uppfyllt svo margt sem mig langaði að hann gerði. Þessi réttur var langan tíma í þróun og fyrstu hugmyndir að honum komu á Slippnum áður en Matur og Drykkur var orðinn að hugmynd.
Í byrjun á Mat og Drykk vildum við gera þorskhausinn að aðalsmerki veitingastaðarins af nokkrum ástæðum, aðallega til þess að varðveita minningar.
Í gamla daga var notast mikið við flökin sjálf á fisknum til söltunar og útflutnings en eftir varð alltaf hausinn sem var á borðum íslendinga í mörg ár í mismunandi útfærslum og þá aðallega soðinn, það er hefð sem nánast hefur dáið út.
Mig langaði að koma honum aftur á borð fólks til að endurvekja minningar einhverra og hefja þær fyrir þá íslendinga sem ekki vita að þetta er herramannsmatur.
Mismunandi áferðir vöðva gerir hann áhugaverðan og skemmtilegan að borða og kjúklingagljáin sem hann er eldaður upp úr, inniheldur helling af sölvum og uppfylla ákveðið bragðskyn sem ég vildi að það myndi gera.
Gellan djúpsteikta til hliðar vekur minningar hjá mörgum um fisk í orly og kartöflusalatið með skessujurtinni setur punktinn yfir i-ið því öll elskum við Íslendingar kartöflusalat.
Hvernig rétturinn kemur til skila er líka einlægt og það er það sem mér þykir einna vænst um.
Höfundur: Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumeistari
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Áhugavert1 dagur síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Markaðurinn5 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Keppni23 klukkustundir síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 klukkustundir síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Frétt12 klukkustundir síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Markaðurinn6 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið





