Keppni
Kokkur ársins undanúrslit – 8 keppa um sæti í úrslitum
Mánudag 19. febrúar verða undanúrslit keppninnar um Kokk ársins 2018. Í fyrra var það Hafsteinn Ólafsson á Sumac Grill + Drinks sem sigraði.
Keppnin fer þannig fram:
Faglærðir kokkar sendu inn uppskriftir af þremur smáréttum úr ýsu, grískinn & kjúklingaskinni og rófum.
Dómnefnd hefur valið 8 bestu uppskriftirnar og munu keppendur elda þær á Kolabrautinni í Hörpu mánudag 19. febrúar fyrir dómara og gesti frá kl 10 – 14. Öllum er velkomið að koma og fylgjast með. Kl 15:30 samdægurs og á sama stað verður tilkynnt hverjir keppa til úrslita.
Fimm efstu keppendur munu svo keppa til úrslita laugardag 24. febrúar í Flóa í Hörpu.
Úrslit fara þannig fram að keppendur hafa 5 tíma til að elda 3 rétti fyrir 12 manns. Kokkur ársins verður krýndur í lok kvölds frammi fyrir fullu húsi veislugesta.
Keppendur
Keppendur í undanúrslitum um titilinn Kokkur ársins 2018:
- Bjartur Elí Friðþjófsson, Grillmarkaðnum
- Garðar Kári Garðarsson, Eleven Experience- Deplar Farm
- Iðunn Sigurðardóttir, Matarkjallaranum
- Ingólfur Norbert Piffl, Hilton Reykjavík Nordica
- Kristinn Gissurarson, Hörpudiski
- Sigurjón Bragi Geirsson, Garra
- Vilhjálmur Guðmundsson, Grand Hótel Reykjavík
- Þorsteinn Kristinsson, Fiskfélaginu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÞráinn Freyr: „Það er alltaf spennandi að skapa eitthvað nýtt“
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Markaðurinn3 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn4 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Markaðurinn3 klukkustundir síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó




