Freisting
Rjúpnaveiðitímabilið 1. til 30. nóvember

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að rjúpnaveiðitímabilið í ár standi frá 1. til 30. nóvember. Mælt er með því að veiddir verði að hámarki 38.000 fuglar.
Áfram mun ríkja sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum. Ákvörðunin byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins og mati Umhverfisstofnunar á heildarveiði árið 2006.
Á Hornfirska fréttavefnum er greint frá að rjúpur fækkanú annað árið í röð frá síðasta uppsveifluskeiði, en það stóð aðeins yfir í tvö ár samanborið við fjögur til fimm ár í fyrri uppsveiflum rjúpnastofnsins. Að mati Náttúrufræðistofnunar er áætlaður varpstofn 2007 um 110.000 fuglar og er það fækkun um 70.000 fugla frá því í fyrra. Við mat á veiðiþoli er miðað við að hlutföll unga í veiðistofni verði 79% það sama og talningar sýndu síðsumars 2007. Stærð veiðistofns 2007 er metin um 440.000 fuglar og með því mælt að ekki verði veiddir fleiri en 38.000 fuglar í ár.
Miðað við fyrri reynslu af rjúpnastofninum í niðursveiflum, mun rjúpum fækka næstu þrjú til fjögur árin og veiðiþol stofnsins minnka að sama skapi. Það er því ljóst að takmarka þarf rjúpnaveiði enn frekar í ár en gert hefur verið á síðustu árum.
Í ljósi þessa hefur umhverfisráðherra ákveðið eftirfarandi:
-
– Veiðidagar verða alls 18 á tímabilinu 1. til 30. nóvember.
-
– Veiðar verða heimilaðar fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga.
-
– Sölubann gildir áfram á rjúpu og rjúpnaafurðum.
-
– Áfram friðað fyrir veiði u.þ.b. 2.600 ferkílómetra svæði á Suðvesturlandi.
-
– Veiðimenn verða sem fyrr hvattir til að stunda hófsamar og ábyrgar veiðar.
-
– Virkt eftirlit verður með veiðunum á landi og úr lofti eftir því sem kostur er.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Uppskriftir5 dagar síðanAurore hjá Sweet Aurora deilir uppskrift með lesendum veitingageirans
-
Markaðurinn5 dagar síðanEyjó og Dóri mættu með afmælisköku – Hafið fagnar tímamótum
-
Keppni5 dagar síðanKokkur ársins 2026 og Grænmetiskokkur ársins 2026 fara fram í IKEA í mars
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Frétt4 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt3 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki





