Frétt
Duldar auglýsingar Krónunnar og 17 sorta
Neytendastofa hefur bannað fyrirtækjunum Krónunni og 17 sortum að nota duldar auglýsingar í markaðssetningu.
Neytendastofu barst fjöldi ábendinga vegna stöðufærslna einstaklinga á Instagram þar sem fjallað var um ágæti vara og vörumerkja Krónunnar og 17 sorta. Fór Neytendastofa því fram á upplýsingar um það hvort einstaklingarnir hafi fengið greitt fyrir umfjallanirnar og hvernig staðið hafi verið að markaðssetningunni.
Að sögn Krónunnar og 17 sorta annaðist þriðja fyrirtækið milligöngu við einstaklingana við skipulagningu markaðssetningarinnar. Við meðferð málsins kom fram að einstaklingarnir höfðu þegið greiðslur fyrir umfjöllunina og því væri um auglýsingar að ræða. Færslurnar voru merktar með myllumerkjum með heitum fyrirtækjanna en Neytendastofa taldi merkingarnar ekki nægilegar til þess að neytendur gætu með góðu móti áttað sig á því að um auglýsingar væri að ræða.
Taldi Neytendastofa því að Krónan og 17 sortir hefðu brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, en ákvörðun Neytendastofunnar má nálgast hér.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt2 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt4 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHandverksbjór og matarveisla á Hólum
-
Markaðurinn1 dagur síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti



