Markaðurinn
Texturas námskeið hjá Ísam
Ísam stendur fyrir námskeiði í samstarfi við Texturas/Condi dagana 4.-5. janúar 2017. Námskeiðið er með demo sniði þar sem áherslan er notkun á Texturas vörum og hvernig er hægt að nota þessar frábæru vörur í eldhúsinu eða bakaríinu.
Um er að ræða sama námskeiðið haldið fyrst þann 4 janúar frá kl. 14-16 og síðan endurtekið 5. janúar frá kl 10-12 og 14-16, og þau eru haldinn í húsakynnum Ísam að Tunguhálsi 11.
Aðeins 15 komast á hvert námskeið og eru skráningar nauðsynlegar.
Fyrstur kemur fyrstur fær.
Skráningar með vali um dagsetningar berist til Eggerts á netfangið [email protected] fyrir 29. desember.
Skráningu fylgi fullt nafn, vinnustaður, netfang og símanúmer.
Leiðbeinendur verða þeir Troels Jæger og René Olsen frá Condi.
Troels er lærður kokkur og hefur unnið á Spáni og víðar en Rene er lærður kokkur og Konditor og hefur m.a unnið fyrir konungsfjölskylduna í Danmörku og í Frakkalandi en síðastliðin 10 ár hafa þeir séð um námskeið á Texturas vörum.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSiggi Hall, Guðmundur og Þormóður á Kipinä
-
Markaðurinn6 dagar síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu
-
Markaðurinn5 dagar síðanNýtt vörumeri hjá Nathan: Musgraves Excellence
-
Markaðurinn5 dagar síðanDineout kynnir nýja klippikortalausn fyrir veitingastaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanDanól kynnir brauð mánaðarins fyrir júlí 2026
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanKynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMichelin-stjörnukokkurinn Max Cekot opnar nýjan veitingastað í Riga
-
Frétt5 dagar síðanMatvælastofnun varar við Malwa tei vegna aðskotaefnis



