Uncategorized
Kampavín teygað sem aldrei fyrr
Landsmenn hafa teygað kampavín sem aldrei fyrr í góðæri undanfarinna ára. Kampavínssala jókst um rösklega áttatíu prósent milli áranna 2003 og 2006.
Íslendingum hefur löngum verið legið á hálsi fyrir neyslugleði. En í grein Þóru Helgadóttur hagfræðings í Markaðnum í dag kemur fram að neyslan hér er mun sveiflukenndari en hjá öðrum vestrænum ríkjum. En það þýðir líka að þegar vel árar flykkjumst við í búðir. Og höfum reyndar gert æ oftar því Íslendingar neyta nú um helmingi meira en þeir gerðu fyrir aðeins 10 árum. Bara Írar slá okkur við í neysluaukningunni.
Og síðustu árin hefur mikil bjartsýni einkennt þjóðfélagið – eins og sjá má þegar skoðað er hvað landsmenn hafa bætt við sig af ýmsum lúxusvarningi. Þóra bendir meðal annars á – og hefur upp úr rannsókn hagstofunnar á útgjöldum heimilanna, að:
Árið 2003 – áttu aðeins 5,8% heimila í landinu tjaldvagn. Yfir tvöfalt fleiri áttu tjaldvagn – þremur árum síðar.
Árið 2003 áttu 2,6% heimila vélsleða – næstum eitt af hverjum tuttugu heimilum átti vélsleða árið 2006.
Sjónvarpstæki eru líklega á hverju heimili en á 5% heimila voru fjögur sjónvarpstæki eða fleiri árið 2003. Slík sjónvarpstækjaauðlegð var komin á 8% heimila þremur árum síðar. Og þarfasti þjónninn er auðvitað til á flestum betri heimilum – en árið 2004 var minnst þriggja bíla floti á fjórum komma þremur prósentum heimila – tveimur árum síðar var viðlíka floti á sjö komma þremur prósentum þeirra.
Og svo eru það guðaveigarnar – drykkurinn freyðandi gullni sem mörgum finnst æðstatákn hins ljúfa lífs – kampavínið. Þar höfum við Íslendingar aldeilis tekið okkur á. Árið 2003 sötruðum við tæplega sextán þúsund lítra af kampavíni – þremur árum síðar svolgruðum við í okkur næstum helmingi meira, eða tæplega 29 þúsund lítra.
Texti: Visir.is | [email protected]
-
Keppni2 dagar síðanÍslandsmeistari í kokteilagerð náði 3. sæti á Evrópumótinu á Kýpur
-
Markaðurinn2 dagar síðanViltu starfa sem kokkur hjá Fosshóteli Reykholti?
-
Markaðurinn1 dagur síðanViltu vinna í hjarta Húsavíkur? Fosshótel leitar að kokki
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan„Ómetanlegt að vita hvaðan maturinn kemur“ sagði Dóra. Um 100 manns á stefnumóti á Flúðum – Myndir
-
Frétt11 klukkustundir síðanSvangur þjófur braust inn í Almars bakarí í Hveragerði
-
Markaðurinn3 dagar síðanYfirmatreiðslumaður óskast á Fosshótel Núpar
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý vara á markað: Svart pepperoni
-
Keppni24 klukkustundir síðanÍsland átti öfluga fulltrúa á fyrstu Green Chef International keppninni





