Smári Valtýr Sæbjörnsson
Kolbrún Jónsdóttir ráðin sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandshótela
Kolbrún Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandshótela. Gríðarlegur vöxtur hefur verið hjá Íslandshótelum sem á og rekur 17 hótel með yfir 1.700 gistirými út um allt land auk funda- og ráðstefnuaðstöðu. Kolbrún er alkunn fyrirtækinu en hún hefur setið í stjórn Íslandshótela frá árinu 2015.
Árið 1987 útskrifaðist Kolbrún sem Cand Oecon frá Háskóla Íslands og lauk síðar Excecutive Education frá Kenan-Flagler Business School árið 2000. Hún stóðst hæfnismat FME í janúar 2011 og árið 2012 hlaut Kolbrún löggildingu sem verðbréfamiðlari. Kolbrún er einnig menntaður leiðsögumaður frá EHÍ.
Kolbrún hefur starfað í lykilstöðum hjá fremstu fyrirtækjum landsins. Hún starfaði sem fjármálastjóri Húsasmiðjunnar í 7 ár eða frá 1989-1996 og tók þátt í miklum vexti félagsins. Kolbrún starfaði sem útibússtjóri, forstöðumaður bakvinnslu og verkefnastjóri Íslandsbanka (Glitni) á árunum 1996-2008 og sat síðar í stjórn bankans. Á árunum 2008-2010 starfaði Kolbrún sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Vátryggingafélags Íslands og því næst var hún framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Kjölfestu (félag í eigu 14 lífeyrissjóða).
Í fréttatilkynningu kemur fram að Kolbrún hefur verið áberandi í íslensku atvinnulífi og setið meðal annars í stjórn Íslandsbanka fyrir hönd Bankasýslu ríkisins á árunum 2010-2012. Eins var hún formaður endurskoðunarnefndar Sameinaða lífeyrissjóðsins (2011-2014). Kolbrún hefur einnig setið í stjórn Húsasmiðjunnar, Fastus, Senu og nú síðast í stjórn Íslandshótela, eins og áður kom fram. Að auki hefur hún unnið að fjölmörgum verkefnum, félags- og stjórnunarstörfum. Kolbrún er gift Páli Hilmarssyni, framkvæmdastjóra hjá Innnes og eiga þau tvö börn.
Kolbrún hlakkar til að takast á við ný og spennandi verkefni hjá Íslandshótelum.
„Eins og allir þekkja þá er ferðaþjónustan ört vaxandi atvinnugrein og á örskömmum tíma hefur hún orðið meginstoð í íslensku atvinnulífi. Íslandshótel er eitt af stærstu félögum hér á landi og rekur í dag 17 hótel og fasteignir hringinn í kringum landið, það er því ánægjulegt að fá að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu hjá félaginu með því frábæra starfsfólki sem þar starfar.“
Mynd: aðsend
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Mesta úrval Japanskra hnífa á Íslandi
-
Keppni2 dagar síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Mijita er fyrsti 100% glútenfríi veitingastaðurinn í Wolt appinu
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Keppni4 dagar síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana