Freisting
Brauðhleifur ársins úr Hafnarfirði

Tveir bakarar úr Hafnarfirði urðu hlutskarpastir í keppninni um brauð ársins þar sem skilyrði var að í það minnsta fjórðungur hráefnisins væri íslenskt bygg frá Þorvaldseyri. Það voru þeir Jón Rúnar Arilíusson og Nikulás Ágústsson úr bakaríinu Kökulist í Hafnarfirði sem unnu með bygghleif frá bakaranum góða, eins og þeir nefna brauðið. Segir Jón Rúnar að brauðið sé bakað eftir aðferðum aftan úr grárri forneskju.
Þetta er í þriðja sinn sem fyrirtækið Kornax efnir til þessarar keppni og var þátttaka góð, 17 brauð bárust frá níu bakaríum. Verðlaunin voru afhent á kornakri Ólafs á Þorvaldseyri 29 júlí s.l. en um það sá Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra. Brauðið verður kynnt og auglýst sérstaklega í haust og verður á boðstólum í mörgum bakaríum, en þá má nú þegar fá í Kökulist.
Kornræktarævintýri Ólafs Eggertssonar á Þorvaldseyri vindur vel fram en hann hefur selt um 14 tonn af byggi og hveiti frá því hann hóf að markaðssetja það á bóndadaginn í vetur. Hann segist vera undir það búinn að eftirspurnin aukist með þessari og öðrum auglýsingum og reiknar með að taka 30-50 tonn af uppskeru haustsins frá til þess að sinna þessu verkefni. Repjan sprettur vel þessar vikurnar á Þorvaldseyri en þar er í gangi tilraun til að hefja framleiðslu á lífeldsneyti. Er undirbúningur að skurði og vinnslu þegar hafinn.
Mynd sem fylgir fréttinni tók Jónas Erlendsson í Fagradal við athöfnina sem fór fram innan um vetrarhveiti Ólafs.
Greint frá í Bændablaðinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Frétt7 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki
-
Food & fun3 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Markaðurinn4 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Markaðurinn2 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo




