Neminn
Klippum kokkanemann
|
Facebook.com er nytsamleg síða en við nemarnir á Sjávarkjallaranum ákváðum að prufa svolítið nýtt, því að það er einn af yngri nemunum sem er vel hárprúður og er ég búinn að vera að suða í honum síðustu 6 mánuði að fá að skella pott á kollinn á honum og klippa eftir.
Hann var ekki alveg að taka gríninu vel og sagði að ef við myndum fá 500 manns á facebook-grúppu sem er tileinkuð þessari uppákomu til að styðja það að hann yrði klipptur þá fengjum við að njóta þeirrar skemmtunnar að hann lýti út eins eins og hálfviti yfir vinnuhelgi hjá okkur og sú dagsetning er helgin 24. júlí til 26. júlí.
Ég skora á alla sem sjá þessa frétt að fara á facebook.com og koma í „grúbbu“ sem heitir „Þurfum 500 manns svo að Gústi kokkanemi verði með pottaklippingu“.
Svo er smá auka, en sá draumur um kvalir fyrir hann Gústa er svolítið stór, en ef það koma 5000 manns þá fer hann í vax á allann líkamann!! En eitt markmið í einu komið og hjálpið okkur að uppfylla 6 mánaða gamlann draum um að sjá Gústa með pottaklippingu!
Smellið hér til að skrá ykkur inn á Facebook grúppuna: Þurfum 500 manns svo að Gústi kokkanemi verði með pottaklippingu!!.
Kveðja
Ísak Nemi
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Rótgróið bakarí / verslun og kaffihús til sölu eða leigu
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Frakkar sigruðu Bocuse d’Or 2025 – Sindri Guðbrandur í 8. sæti
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Sjáðu keppnisrétti Sindra hér – Myndir
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Sindri Guðbrandur hóf keppni í Bocuse d´Or í morgun – Bein útsending
-
Bocuse d´Or5 dagar síðan
Myndir: Það styttist í herlegheitin – Sindri keppir fyrir Íslands hönd 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Keppni3 dagar síðan
Daníel Oddsson á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025 – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri keppir í Bocuse d´Or
-
Starfsmannavelta3 klukkustundir síðan
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir ráðin yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar