KM
Galadinner KM

Um árabil hefur Klúbbur Matreiðslumeistara hafið nýtt starfsár með glæsilegum hátíðarkvöldverði, sem nú í 22 ár hefur skipað sér fastan sess í samkvæmislífi landans.
Fastagestir eru fjölmargir og eftirspurn eftir sætum jafnan meiri en framboð á þessu kvöldi, þar sem gestir fá notið alls þess besta sem völ er á í mat og drykk.
Undirbúningur kvöldsins tekur marga mánuði og fjöldi fólks kemur að þeirri vinnu í sjálfboðastarfi.
Klúbbur Matreiðslumeistara nýtur einnig stuðnings birgja og annarra velunnara til verksins.
Kvöldverðurinn er ein helsta fjáröflun Klúbbs Matreiðslumeistara sem gerir út landslið Íslands í matreiðslu og stýrir fjölda annarra faglegra verkefna.
Landsliðið okkar kom á dögunum heim með tvö gull og tvö silfur frá Ólympíuleikum matreiðslumanna í Þýskalandi sem er besti árangur liðsins til þessa.
Í kjölfarið væntum við þess að Ísland hækki úr 9. sæti á styrkleikalista alheimssamtakanna, þar sem það er nú.
Gissur Guðmundsson, fyrrverandi forseti Klúbbs Matreiðslumeistara var kjörin forseti alheimssamtakanna WACS, fyrr á þessu ári ásamt Hilmari B. Jónssyni varaforseta og Helga Einarssyni sem ritara.
Samtökin telja um 8 milljónir félagsmanna í 84 löndum.
Hátíðarkvöldverður ársins 2009 verður haldinn laugardagskvöldið 10. janúar í nýjum og glæsilegum salarkynnum Bláa Lónsins Lava.
Þema kvöldsins að þessu sinni er Heitur vetur og ætla matreiðslumeistarar kvöldsins að framreiða rétti úr íslensku hráefni með suðrænum blæ.
Kvöldverðurinn hefst klukkan 18:00 með móttöku gesta.
Forseti Íslands er ávallt boðinn sem heiðursgestur þetta kvöld.
Gleðin og dýrðin verður alls ráðandi sem endurspeglast í skemmtiatriðum og tónlistaflutningi.
Atvinnudansararnir Ásta Sigvaldadóttir margfaldur Danmerkurmeistari og Przemek Lowicki margfaldur Póllandsmeistari sýna okkur m.a.eldheita suður-ameríska dansa.
Saman hafa þau unnið Íslandsmeistaratitil og voru í 9. sæti á síðasta heimsmeistaramóti.
Tónlistin verður í flutningi Tómasar R. Einarssonar, bræðranna Ómars og Óskars Guðjónssona ofl. ásamt söngvurunum Ragnheiði Gröndal og Bogomil Font.
Kvöldinu lýkur með dansleik þar sem í bland við salsatónlist munu heyrast stórsveitartónar.
Sigurður Þórir Sigurðsson myndlistamaður hefur málað verk sem prýðir undirdisk gesta.
Mun hann einnig sýna hluta af verki sínu Tíminn og vatnið
Kveðja
Alfreð Ómar Alfreðsson, forseti KM
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði



