KM
Uss, uss The Canadiens is coming to Town
Þessi hefðbundnu morgunverk gerð og smellt sér síðan i morgunmat, við okkur ellismellina í hópnum hafði verið tilkynnt deginum fyrr að okkar nærveru væri óskað kl 11,30 í tjaldinu með veitingasalnum.
Notaði ég morguninn til göngu um svæðið og leitandi að rakara, rambaði ég inn á Skagen Brygge hótelið www.sbh.no og nánast í flasið á Lauritz Hansen einum mesta töffara sem norska kokkastéttin hefur alið, en hann er eigandi að því og benti hann mér á rakara í næsta húsi við, og þvílíkur rakari strákar, 22 ára ljóshærð um 185 á hæð og með línurnar í lagi og get ég staðfest að sennilega hef ég aldrei verið eins þægur stólnum, hjá rakara eins og í þetta sinn.
Fyrirgef ég Lauritz gamla framkomu þegar íslenska landsliðið hitti það norska í Culinary Institut of America www.ciachef.edu, eftir sneypuför Norðmanna það ár 1991 til Chicago, og hann hunsaði okkur. Eftir klippinguna varð ég að rölta af stað þar sem nýr kúnni var kominn í stólinn og þótti leytt.
Stuttu seinna labbaði ég næstum inn í hjónin Martom Tjessem hjá Figgjo og Sif Stöftingdal hjá Gastonomisk Instudit, en það var svo margt að sjá að maður gætti ekkert að sér, það er alltaf jafn gaman að hitta þau hjón en við Sif vorum saman á NKF dómaranámskeiði í Kaupmannahöfn 2005 og voru rifjaðar upp minningar frá liðnum samverustundum en svo þurfti kallinn að fara því það var kominn tími á að mæta í tjaldið.
Í tjaldinu var allt under controlle og allir klárir í bátana og var okkur mentorunum vísað til borðs þar sem við áttum að snæða matinn í fyrsta hollinu og kl: 12;00 var setið í öllum 60 sætunum og keyrslan hófst, forrétturinn var sýrópsmarineraður og steiktur Lax með yougurt agúrkusalati, radísum og dilli og smakkaðist hann ágætlega og kom syrópsbragðið svolítið skemmtilega í gegn.
Aðalréttur var Gufusoðin Lúða og kræklingur árstíðarbundið norskt grænmeti og tarragon sósa, og var gerður góður rómur að matnum.
Í desert var hvítsúkkulaði og mascarpone kaka með staðbundnum jarðaberjum og sabyon sósu bragðbættri með Kanadísku Ísvíni og var það bara toppurinn á tilverunni.
Stóðu ungkokkarnir sig frábærlega vel og unnu eins og smurð vél og samvinnan eins góð og hægt var að fara fram á.
kl 1500 skyldi holl no 2 borða og holl 3 kl 1900 og þá 5 rétta og seldust upp allir miðar fljótt og fór ekki fram hjá neinum að þetta var aðaldæmið á Glad mad festivalinu þetta árið.
Ég hafði rætt við Frode að ég tæki mér frí það sem eftir var dagsins, en yrði allan fimmtudaginn í staðinn, en ég ætlaði á fótboltaleik hjá heimaliðinu í Stavanger Viking á Viking stadium og sjá þá etja kappi við Rosenberg frá Þrándheimi sem hefur verið eitt sigursælasta lið Noregs síðasta áratug og var mættur klukkutíma fyrir leik út á völl, Nina hjá NKF hafði reddað miðanum og var hann á frábærum stað fyrir miðju aldeilis glæsilegt, völlurinn glæsilegur og utan frá líktist hann skrifsofubyggingu niðurgrafinn og sándið á vellinum var geðveikt ( til samanburðar var á leik FH og Aston Villa og virkaði sándið þar eins og úr djúkboxi miðað við í Stavanger), þannig að maður fékk sér vallarfæði, kók, pylsu og franskar og muðlaði á þessu þegar leikurinn hófst og var hann hin fínasta skemmtun.
Eina mark leiksins skoraði gamla kempan úr Tottenham og nú í Rosenborgarliðinu Steffen Iversen og fór maður vel afslappaður og ánægður inn til Stavanger og upp á hótel og i koju.
Fleira tengt efni:
10.8.2008
Uss, uss The Canadiens is coming to Town
20.7.2008
Nordic/Canada culinary Junior Exchange 2008
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Rótgróið bakarí / verslun og kaffihús til sölu eða leigu
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Frakkar sigruðu Bocuse d’Or 2025 – Sindri Guðbrandur í 8. sæti
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Sjáðu keppnisrétti Sindra hér – Myndir
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Sindri Guðbrandur hóf keppni í Bocuse d´Or í morgun – Bein útsending
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Myndir: Það styttist í herlegheitin – Sindri keppir fyrir Íslands hönd 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Keppni3 dagar síðan
Daníel Oddsson á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025 – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri keppir í Bocuse d´Or
-
Frétt5 dagar síðan
Menntun í matvælaiðnaði ekki metin til launa í leikskólum – Kallað eftir endurskoðun