Freisting
Veisla í vegkantinum

Það er alltaf jafnmikil stemning í því að stoppa í vegasjoppu á för sinni um landið og sjá hvað er í boði. Jafnvel fá sér eina máltíð. Páll Ásgeir Ásgeirsson, ritstjóri Útiveru og höfundur leiðsagnabókarinnar 101 Ísland, segir að sjoppur úti á landi séu miklu skemmtilegri en sjoppur í Reykjavík.
DV gerði létta verðkönnun á nokkrum stöðum víðs vegar um landið og komst að því að verðið er mjög misjafnt frá einum stað til annars
Dýrasta hamborgaratilboð landsins er í Þrastarlundi samkvæmt verðkönnun sem DV gerði í nokkrum vegasjoppum víðs vegar um landið. Þar kostar tilboðið 1.350 krónur og er án goss. Ódýrasta tilboðið er á Hlíðarenda á Hvolsvelli en þar kostar það 870 krónur án sósu. Næstum 500 króna munur er á. Ekki er þó hægt að segja til um hvort og þá hversu mikill gæðamunurinn er á tilboðunum.
Hagstæðast er að fá sér hamborgaratilboð á Norður- og Austurlandi. Frá Húsafelli, um Vestfirði og að Staðarskála fara öll hamborgaratilboð yfir 1.000 krónur. Það er svo í N1 á Blönduósi, einni vinsælustu stoppistöð landsmanna, sem tilboðið fæst á 875 krónur. Frá Blönduósi, yfir á Austfirði og að Kirkjubæjaklaustri eru öll hamborgaratilboð undir 1.000 krónum en í Skaftaskála er tilboðið á 1.095 krónur. Í Víkurskála í Vík og Hlíðarenda á Hvolsvelli, þar sem jafnframt er ódýrasta kókflaskan, fer verðið aftur undir 1.000 krónur. Það er svo Þrastarlundur sem er dýrasta vegasjoppa landsins, þar kostar hamborgaratilboðið heilar 1.350 krónur.
Greint frá á DV.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSilli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð
-
Markaðurinn5 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja
-
Markaðurinn6 dagar síðanÞjónn óskast á Fosshótel Reykholt í Borgarfirði
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPáfinn skálar fyrir fyrstu vínflöskunum úr eigin víngarði
-
Markaðurinn4 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Frétt3 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma


