Smári Valtýr Sæbjörnsson
Magnús matreiðslumeistari og framkvæmdastjóri Air Chefs Catering: „..spennandi verkefni að opna flugeldhús á flugvallarsvæðinu.“

Hjá Air Chefs Catering verða framleiddar máltíðir fyrir bæði farþega og flugáhafnir WOW air og annarra flugfélaga sem fljúga til Íslands
Fyrirtækið Air Chefs Catering verður opnað í haust, gangi áætlanir eigenda eftir. Framkvæmdastjóri félagsins er Magnús Ólafsson. Hjá Air Chefs Catering verða framleiddar máltíðir fyrir bæði farþega og flugáhafnir WOW air og annarra flugfélaga sem fljúga til Íslands að því er fram kemur á heimasíðu Víkurfrétta. Einnig mun þar verða framleiddur matur fyrir mötuneyti Airport Associates og önnur fyrirtæki sem til félagsins leita.
Á heimasíðu vf.is kemur fram að eldhúsið verður staðsett í nýbyggingu Airport Associates sem nú er verið að reisa á flugvallarsvæðinu. Að Air Chefs Catering standa Airport Associates, Fjárfestingarfélagið Títan ehf. í eigu Skúla Mogensen, aðaleiganda WOW air, og Fjárfestingarfélagið MK í eigu Magnúsar og viðskiptafélaga hans.
Magnús er matreiðslumaður og viðskiptafræðingur að mennt og var áður framleiðslustjóri hjá IGS svo hann er vel kunnugur starfsemi sem þessari. Að sögn hans verða starfsmenn tíu til fimmtán til að byrja með og verður unnið samkvæmt vaktafyrirkomulagi.
„Þetta er mjög spennandi verkefni að opna eldhús á flugvallarsvæðinu. Nú er verið að vinna að hönnun eldhússins í samstarfi við mjög færa aðila. Það eru margvíslegar kröfur sem þarf að uppfylla í tengslum við framleiðsluna.“
sagði Magnús í samtali við Víkurfréttir.
Mynd: wowair.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn1 dagur síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn2 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Markaðurinn6 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí




