Vertu memm

Sverrir Halldórsson

Innsiglið rofið og vertinn vel hvíldur

Birting:

þann

Opið er upp á gátt í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað. Mynd: bb.is

Opið er upp á gátt í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað. Mynd: bb.is

„Þeir eru að rjúfa innsiglið núna. Ég er að fara keyra vestur aftur og við verðum með opið í kvöld. Við getum reyndar ekki verið með hlaðborð líkt og venjulega en það verður hægt að panta stakar pönnur.  Ljósi punkturinn í þessu öllu er sá að ég kem vel hvíldur tilbaka,“ segir Magnús Hauksson, vert á veitingastaðnum Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað á Ísafirði.  Eins og kunnugt er orðið var staðurinn innsiglaður af Ríkisskattstjóra á fimmtudag en það var í fyrsta skipti sem embættið beitir slíkri heimild til að stöðva atvinnurekstur, að því er fram kemur á bb.is.

Nokkur styr hefur staðið um aðgerðina og mótmæltu eigendur veitingastaðarins ummælum Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskattstjóra sem líkti mikilli fjölgun í starfsemi tengdri ferðaþjónustu við gullgrafaraæði. Þar sem Tjöruhúsið var eina fyrirtækið sem nefnt var í þessu samhengi vildu forsvarsmenn þess meina að hann hafi þarna bendlað þá við gullgrafaraæði í ferðaþjónustu og skattsvik, þegar ljóst væri „að um væri að ræða misskilning í bland við klassískan vestfirskan tossagang.“, segir enn fremur á vestfirska vefnum bb.is.

 

Mynd: bb.is

/Sverrir

Taggaðu okkur á Twitter og Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið