Uncategorized
Skemmt áfengi kostar 15 Rússa lífið; 400 fluttir á sjúkrahús
Skemmt áfengi hefur kostað 15 manns lífið í norðvesturhluta Rússlands á undanförnum vikum. Þá hafa rúmlega 400 einstaklingar verið lagðir inn á sjúkrahús eftir að hafa bragðað á hinu mannskæða bruggi.
Yfir 400 manns, sem búa í Pskov-héraði, hafa verið fluttir á sjúkrahús á síðastliðnum þremur vikum með einkenni eitraðrar lifrabólgu sem er þó ekki smitandi, sagði yfirlæknir rússneska heilbrigðisráðuneytisins. Þá sagði hann jafnframt að sökudólgurinn væri að öllum líkindum áfengur drykkur sem búið væri að eiga við.
Yfirvöld í héraðinu hafa lýst yfir heilsufarsneyðarástandi sem gerir það að verkum að lögreglan getur framkvæmt skyndiathuganir hjá smásöluaðilum sem selja áfenga drykki að sögn læknisins.
Svipaðar áfengiseitranir komu upp í september sl. en eitrað áfengi olli þá 17 dauðsföllum og yfir 500 manns veiktust vegna þess.
Samkvæmt opinberum tölum látast um 42.000 Rússar á ári hverju eftir að hafa drukkið eitrað áfengi.
Greint frá á Mbl.is
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni7 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð



