Freisting
Íslensk kúskel talin elsta dýr jarðar

Kúskel sem fannst við Íslandsstrendur er talin langlífasta dýr jarðarinnar. Talið er að hún hafi orðið 405 til 410 ára gömul. Vísindamenn við Bangor háskólann í Wales reiknuðu út aldur skeljarinnar með því að telja hringi á henni.
Fjallað er um málið á vefsíðu BBC og þar segir að kúskelin hafi gælunafnið Ming sökum aldurs síns enda klakin á tímum þess veldis í Kína. Hún var unglingur þegar Móðuharðindin geysuðu hér á landi og á miðjum aldri þegar Íslendingar fengu fyrstu stjórnarskrá sína frá Dönum.´
Samkvæmt Heimsmetabók Guiness er elsta dýr jarðar talin vera Arctica-skel sem fannst 1982 og varð 220 ára gömul. En óopinberlega var önnur kúskel sem til var á íslensku safni talin vera 374 ára gömul. Fundur vísindamannanna við Bangor háskólann er a.m.k. 31 ári eldri en sú sem hingað til hefur verið talin elsta dýrið.
Chris Richardson prófessor við Bangor háskólann segir að Ming geti hjálpað til við að finna út afhverju sumar dýrs ná óvenjuháum aldri.
Greint frá á Visir.is
-
Keppni14 klukkustundir síðanÍslandsmeistari í kokteilagerð náði 3. sæti á Evrópumótinu á Kýpur
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanEyþór Ás, sonur forseta KM, sækir matreiðslunám alla leið norður til Akureyrar frá Selfossi
-
Keppni2 dagar síðanRóbert Aron Proppé keppir fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í kokteilagerð
-
Keppni2 dagar síðanBæði íslensku liðin mæta til leiks á fyrsta degi heimsmeistarakeppninnar
-
Markaðurinn3 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍsak Aron kynnir íslenskan mat á þriggja daga menningarhátíð í Seattle
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanViltu starfa sem kokkur hjá Fosshóteli Reykholti?
-
Markaðurinn3 dagar síðanSjáðu myndirnar: Tæplega 200 gestir mættu á morgunverðarveislu Innnes





