Smári Valtýr Sæbjörnsson
Icelandair hótel í Keflavík verður Park Inn by Radisson
Eigendur Icelandair hótelsins í Keflavík breyta nafni hótelsins í Park Inn by Radisson efir að hafa gengið til samstarfs við Carlson Rezidor, eina stærstu hótelkeðju heims. Samstarfssamningurinn tekur gildi á haustdögum en fyrir eru tvö hótel hérlendis í samstarfi við Carlson Rezidor, það eru Radisson Blu Saga og Radisson Blu1919, en frá þessu greinir Víkurfréttir.
Helsta ástæða breytinganna eru þeir möguleikar sem felast í þeirri miklu áherslu sem Park Inn by Radisson leggur á rekstur flugvallarhótela en keðjan rekur nú þegar hótel við alla helstu millilandaflugvelli í Evrópu. Samningaviðræður við erlendu hótelkeðjuna stóðu yfir í töluverðan tíma en gengið var frá þeim í síðustu viku.
Við kveðjum Icelandair hótelin eftir tæplega tveggja áratuga ánægjulegt samstarf. Framundan eru spennandi tímar enda mikill ávinningur fyrir hótelið að ganga til samstarfs við og verða hluti af bókunarkerfi alþjóðlegrar hótelkeðju,
segir Bergþóra Sigurjónsdóttir hótelstjóri, en hótelkeðjan rekur tæplega 1.400 hótel með um 180.000 herbergjum.
Eftir breytingar sem nýlega og væntanlegar breytingar á hótelinu uppfyllir það allar gæðakröfur Park Inn by Radisson, meðal annars hvað varðar þægindi, funda- og ráðstefnuaðstöðu. Á hótelinu eru sex fundasalir sem rúma frá 10 til 300 manns. Herbergi hótelsins eru 77 talsins, þar af voru 14 þeirra tekin í notkun nýverið.
Greint frá á vf.is
Mynd: icelandairhotels.com
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn2 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanHrekkjavöku kökur




